Dagfari - 15.04.2003, Qupperneq 2
Stríð fyrir þig
Ávarp flutt á mótmælastöðu við Stjórnarráðið þann 12. apríl 2003
Fyrir rétt um 43 árum fæddist höfundur þessarar greinar í Bandaríkjum
norður Ameríku (BNA). Sú þjóð hafði þá, í framhaldi af góðum árangri í
síðari heimstyrjöldinni, talið það skyldu sína að skerast í leikinn á Kóreu-
skaga og þar hélt hún úti stríði í um 3 ár á forsendum frelsis og án rétt-
mætrar aðkomu Sameinuðu þjóðanna (SÞ). McCarthy stóð á hliðarlínunni.
Þjóðin var þá að hlaða undir hina svokölluðu Dómínó kenningu sem síðar
varð skálkaskjól það er réttlætti áframhaldandi hemaðaríhlutun í suð-austur
Asíu og árið 1964 sviðsetti hún Tonkin-flóa „atvikið“ sem notað var sem
átylla til hemaðar í Víetnam. Þá vom rökin þau að „hinn frjálsi heimur“ yrði
að verjast á öllum vígstöðvum gegn „heimsvaldastefnu alræðisstjórnar
kommúnista" og ógn þeirra við „frið og frelsi“. Því fór sem fór og þegar upp
var staðið höfðu rúmlega 58 þúsund bandarísk ungmenni verið drepin. Nöfn
þeirra má nú lesa á u.þ.b. 200 metra löngum vegg, minnismerkinu um
Víetnam stríðið í Washington D.C.
í landi einu í mörg þúsund kílómetra fjarlægð voru menn sem réru öllum
ámm í stuðningi sínum til réttlætingar þessu stríði. Þótt að níu af hverjum tíu
sem dóu væm óbreyttir borgarar, börn, konur, karlar, afar, ömmur, barna-
börnin sem ekkert, ekkert höfðu gert á þeirra hlut. Þeir fóru hörðum orðum
um þá sem voru ekki sammála og kölluðu þá m.a. óvini hins frjálsa heims.
Þessir menn voru íslenskir þingmenn, þeir vom íslenskir ráðherrar, þeir vom
ritstjórar Morgunblaðsins. Það sem þeir fjölluðu um sín á milli og á síðum
blaðsins var frelsanir óvinaþorpa úr höndum kommúnista. Það sem þeir
fjölluðu aldrei um er að hinn 200 metra langi veggur er í raun 8500 metra
langur þegar nöfn „hinna”, þ.e. þeirra þriggja milljóna víetnama sem líka
voru drepin eru talin með.
Menn sem réttlæta stríð
Enn á ný er hafið stríð í nafni frelsis. Nú sem þá eru það ekki börn ráða-
manna í BNA sem verða drepin, heldur að stórum hluta háskólanemar hverra
eini möguleiki til menntunar á háskólastigi er að ganga í varalið hersins. Nú