Dagfari - 15.04.2003, Blaðsíða 7

Dagfari - 15.04.2003, Blaðsíða 7
Kveðja til friðarfunda I tilefni af samkomum friðarsinna á ísafirði og á Akureyri, 29. og 30. mars, sendi miðnefhd SHA frá sér eftirfarandi kveðju til fundanna: Miðnefnd Samtaka herstöðvaand- stæðinga sendir mótmælafundinum baráttukveðjur. Rödd almennings á Islandi þarf að heyrast í hljómkviðu almennings um allan heim sem mótmælir innrás í Irak. Þessi hernaður stangast á við vilja Sameinuðu þjóðanna, ákvæði Genfar- sáttmálans um vernd óbreyttra borgara á stríðstímum og óskir almennings um allan heim um frið- samlega lausn. Þessi hernaður er liður í heimsvaldastefnu árásargjarns herveldis sem alltaf og ávallt virðist kjósa stríð frekar en frið.Engin siðmenntuð þjóð getur stutt slíkan hernað, en samt sem áður hefur ríkisstjórn íslands kosið að skipa þjóðinni í hóp útlagaríkja sem virða ekki alþjóðalög og gert okkur meðsek í stríðsglæpunum. Ríkisstjórn íslands smánar hugtök á borð við frelsi, lýðræði og öryggi, með því að tengja þessar fögru hugsjónir við vopn, dauða og lögleysu. Við mótmælum athæfi ríkisstjórnarinnar og þessum hernaði sem háður er í okkar nafni. Sýnum almenningi í írak samstöðu, sýnum samstöðu með fólki sem ekki vill láta myrða sig í nafni frelsis og lýðræðis. Miðnefnd

x

Dagfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.