Dagfari - 15.04.2003, Blaðsíða 9

Dagfari - 15.04.2003, Blaðsíða 9
Ályktun frá fundi vestfirskra friðarsinna Fundur friðarsinna á Vestfjörðum, haldinn í Edinborgarhúsinu á ísafirði laugardaginn 12. apríl 2003, mótmælir harðlega þeirri ákvörðun forsætisráðherra og utanríkisráðherra að lýsa stuðningi þjóðarinnar við stríðsrekstur Bandaríkjamanna og Breta í Irak. Fundurinn átelur þau gerræðislegu vinnubrögð ráðherranna að gefa út slíka yfirlýsingu án samráðs við þing eða utanríkismálanefnd. Ráðherrunum mátti auk þess vera það ljóst að stuðningsyfirlýsing við þessar aðgerðir gekk þvert gegn vilja meginþorra almennings í landinu. Ef Island á að geta talist lýðræðisríki, verða yfirvöld landsins að virða lýðræðið í stað þess að traðka á því með þessum hætti. SHA ísafirði Alyktun frá Samtökum herstöðvaandstæðinga Samtök herstöðvaandstæðinga mótmæla harðlega áformum ríkisstjórnar Danmerkur um að gera herstöðina í Thule að hluta að geimvarnaráætlun Bandaríkjanna. Ljóst er að þessi áætlun mun hrinda af stað nýju vígbúnaðarkapphlaupi og brýtur í bága við alla helstu sáttmála um kjarnorkuvopn. Með því að sniðganga grænlensk yfirvöld í tengslum við þessa ákvarðanatöku eru dönsk stjórnvöld ekki aðeins að sýna Grænlendingum fádæma lítilsvirðingu, heldur eru þau að hundsa réttmæta kröfu grænlenskra stjórnvalda um að aðstaða Bandaríkjanna í Thule verði ekki notuð til að byggja upp vígbúnað sem ógni heimsfriðnum. SHA

x

Dagfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.