Aðventfréttir - 01.03.1992, Síða 6
STUTT ÁGRIP ÚR SÖGU
AÐVENTISTA í HAFNARFIRÐI
Flutt afLilju Guðsteinsdóttur á stofnunarhátíð Hafnarfjarðarsafnaðar 21. mars s.l.
Þeir sem ekki þekkja til gætu haldið að boðun og starf
aðventista í Hafnarfirði sé rétt nýbyrjað. Hins vegar,
þegar lesið er í gömlum heimildum safnaðar aðventista
á íslandi, kemur í Ijós að gróskumikið boðunarstarf átti
sér stað víða um landið á öðrum og þriðja áratug þess-
ara aldar. Margir söfnuðir voru skipulagðir, þeir urðu
alls 14 talsins, og á meðal þeirra var einmitt söfnuður
hér í Hafnarfirði.
Sjötta febrúar, árið 1915, skírði O.J. Olsen 26 einstak-
linga sem aðeins 22 mánuði síðar, eða 17. apríl, settu
formlega á stofn söfnuð aðventista í Hafnarfirði. í fyrstu
var hér öflugt safnaðarstarf þrátt fyrir talsvert mótlæti
sem söfnuðurinn varð fyrir vegna misskilnings og for-
dóma almennings. Olsen hafði búsetu hér í Hafnarfirði
í eitt ár og þá réðst söfnuðurinn af stórhug í að byggja
sitt eigið samkomuhús. Samkomuhúsið hlaut hafnið
Salem og er enn við lýði að Gunnarssundi hér í miðbæ
Hafnarfjarðar. Þegar gengið er upp Gunnarssund er það
efsta húsið á vinstri hönd sem um er að ræða. Húsið er
nú notað sem íbúðarhús.
Á meðal fyrstu meðlima aðventsafnaðarins í Hafnar-
firði má nefna hjónin Guðmund Pálsson og Katrínu
Björgólfsdóttur, en Guðmundur starfaði lengi sem boð-
beri sannleikans og vann ötullega að málefnum safnað-
arins, m.a. fyrir Biblíubréfaskólann. Flestir innan safn-
aðarins þekkja Guðrúnu Franklín, dóttur Guðmundar.
Aðrir meðlimir safnaðarins í Hafnarfirði frá fyrstu tíð
voru Sólrún Jónsdóttir systir Einars Andréssonar sem
var starfsmaður á búinu að Hlíðardalsskóla um tíma. Þá
má nefna Bjarnfríði Benjamínsdóttur, móður Dagbjart-
ar Jónsdóttur Langelyth, og Lovísu Jónsdóttur, systur
Dagbjartar. Einnig voru hjónin Gróa Þórðardóttir og
Jóhann Jónsson meðlimir safnaðarins, en þau voru for-
eldrar Kristrúnar Jóhannsdóttur matvælafræðings, sem
nú er látin.
Að sjálfsögðu mætti nefna ýmsa fleiri sem hér komu
við sögu fyrr á öldinni. Þegar kemur fram á árið 1921 er
safnaðarstarfið í algjöru lágmarki, og var samkomu-
húsið selt árið 1922. Þó hélt fólkið áfram að koma saman
Stofnmeðlimir safnaðarins rita nöfn sín.
ídag
f dag er bjart yfir byggð og mönnum.
Ég bylgju þakkar í hjarta finn.
Senn hörfar vetur og vorið kemur
á vængjum björtum, með ilinn sinn.
í dag við höfum hér safnast saman
með söng í hjörtum um Drottins náð.
Hans sem framtíðar veginn varðar,
og vernd oss heitir í lengd og bráð.
í dag við ætlum að bindast böndum
bræðralagsins í von og trú.
Mikil þörf er í myrkum heimi
martröð sorga í gleði snú.
Að helga störf okkar Hafnarfirði
er hugsun okkar og vonin sterk.
Og biðjum Drottinn, að blessa alla
búendur hér og þeirra verk.
Björk
í heimahúsum, og enn voru einstaklingar skírðir inn í
söfnuðinn í Hafnarfirði. Árið 1928 var Helga Sigfúsdóttir
skírð, en hún var móðir systranna Sigríðar og Önnu El-
ísdætra sem nú búa á Suðurnesjum. Þegar Helga var
skírð var einnig Sigríður Guðmundsdóttir skírð, en hún
er móðir Tómasar fyrrum bústjóra á Hlíðardalsskóla,
svo eitt af mörgum börnum hennar sé nefnt. Á meðal
einstakra aðventista sem síðar settu mark sitt á félags-
lífið í Hafnarfirði má nefna Salómon Heiðar, en hann var
einn þeirra sem stóðu að stofnun Karlakórsins Þrestir í
Hafnarfirði, og var hann í stjórn kórsins um árabil.
Sigríður Elísdóttir minnist þess hve erfitt það var að
vera trúfastur aðventisti á þessum tíma. Þeir urðu iðu-
lega fyrir glósum, aðkasti og fordómum, og reyndist oft
erfitt fyrir fólk safnaðarins að ráða sig í vinnu vegna
hvíldardagsins. Það varð mörgum til hjálpar að bróðir
Helgu Sigfúsardóttur var verkstjóri sem gat útvegað
fólkinu vinnu hjá sínu fyrirtæki. Löngu eftir að Salem
hvarf úr eigu safnaðarins voru samkomur ýmist heima
hjá Jóhanni Jónssyni eða Sigríði Guðmundsdóttur.
Allan tímann hafa þó aðventistar verið búsettir í
Hafnarfirði, og hefur söfnuðurinn í Reykjavík og Sam-
6
Aðventfréttir 3.1992