Aðventfréttir - 01.01.2002, Blaðsíða 4

Aðventfréttir - 01.01.2002, Blaðsíða 4
ilíu um Home" ar. Viljum við einnig koma á fram- færi innilegu þakklæti til þeirra sem hafa nú þegar styrkt okkur í þessari framkvæmd. Meðfylgjandi er tölvu- mynd af heimilinu sem við erum að byggja og bankareikningsnúmer fyr- ir þá sem hafa áhuga á að styrkja okkur. Megi góður Guð blessa ykkur ríkulega, sem takið þátt í þessu starfi með okkur. Kær kveðja Anna K. Carvalho í þau 5 ár sem heimilið hefur starfað, hafa 11 börn verið ættleidd á örugg og góð heimili. 3 börn gátu snúið aftur til fjölskyldu sinnar og höfum við fengið önnur börn í stað- in. Eins og er, er barnaheimilið stað- Börn eru að eðli til viðkvæm og ástúðleg. Það er auðvelt að gera þau glöð og auðvelt að gera þau vansæl. Með blíðum aga í kærleiksríkum orðum og athöfnum geta mæðurnar tengt börn sín hjörtum sínum. Það eru mikil mistök að vera strangur og smámunasamur við börnin. Heil- steypt festa og reiðilaus stjórn eru nauðsynleg til að aga hverja fjöl- skyldu. Talaðu með rósemi um það sem þér býr í brjósti, láttu athafnir þínar einkennast af yfirvegun og hvikaðu í engu frá því að fram- kvæma það sem þú hefur sagt. Tekið úr bókinni „Boðskapur til safnaðarins 2" bls 219. sett í borginni Atibaia sem er 60 km frá Sao Paulo borg. Nú er hinsvegar stefnan hjá okkur að færa okkur um set og flytja í sveit Sao Paulo borgar. Hugsunin með að flytja í sveit er að búa börnunum stað, þar sem þau geta tekið þátt í að rækta jörðina og þar sem við getum haft húsdýr, 'bæði til gagns og gamans. Við höfum fengið nógu stóra lóð til að geta byggt fleiri hús seinna meir og höf- um við nú þegar hafist handa við að byggja eitt barnaheimili. I maí byrj- uðum við en svo lá öll vinna niðri vegna fjárskorts í 3-4 mánuði. Nú er hinsvegar verið að setja þakið á. Verkefni okkar núna er að safna fé fyrir gluggum, hurðum og gólfefni. Þetta mun kosta okkur um það bil U$ 1400 dollara. Ef einhver hefur áhuga og getu til að styrkja okkur værum við mjög þakklát. Allar upp- hæðir smáar sem stórar eru velþegn- Hægt er að leggja peninga í banka í Brasiiiu Banki: Banco do Brasil - agencia 0415-4 Reikning: 36.364-2 Conta Poupanca Eigandi reiknings: Anna K. Carvalho R: José Manuel da Fonseca Jr. 585 bl.llb Vila Matilde- SP. Cep: 03511-000 BRASIL Einnig er hægt að leggja inn ó íslensk- an reikning sem Birgir Oskarsson hef- ur opnað sérstaklega fyrir „Sweet Home" heimilin. Banki: íslandsbanki: 0586-14-601735 Kennitala: 030382-4399 4 Aðventfréttir

x

Aðventfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.