Aðventfréttir - 01.01.2002, Blaðsíða 8
Rúmlega þrjátíu konur tóku þátt í
kvennamóti að Hlíðardalssetrinu
aðra helgina í mars.
Gestur mótsins var Helen Pear-
son blaðamaður og almennings-
tengslaráðgjafi, en Helen var einnig
gestur mótsins sem haldið var á
HDS fyrir tveim árum.
Þema mótsins var vorverk hjart-
ans þar sem hún fjallaði um mikil-
vægi persónulegs sambands okkar
við Jesú og þess að „fleygja" því sem
fánýtilegt er og varðveita það sem
máli skiptir.
Boðskapurinn var kjarnmikill var
sumt af efninu rætt í smærri hópum.
Kvennamót að Hlíðar-
dalssetrinu í mars
Helen kennir dæmisögur Krists á
mjög lifandi hátt. Hún lét hópinn
m.a. leita að vel földum „drökmum"
og kveikja á kertum á táknrænan
hátt.
Maturinn var ljúffengur og fal-
lega skreyttur. Yfirmatráðskona var
Laila Panduro og henni til aðstoðar
voru Erika Kristjánsdóttir og Mar-
grét Ospina.
Um tónlist sá Ester
Ólafsdóttir.
Kvöldvaka var
haldin á laugardags-
kvöldinu. Það var farið
í leiki, sungið, leikin
leikrit og farið með
annað skemmtiefni.
Mesta kátínu vakti ung
„kona" sem ekki hafði
skráð sig á mótið.
Mótið einkenndist
af einingu og kærleika.
Eftir hríðarbyl og
skafrenning allan
hvíldardaginn birti upp og skartaði
landið sínu fegursta á heimleiðinni í
glampandi sólskini.
Við vonumst til að geta haldið
mót að nýju að ári liðnu. Bestu þakk-
ir til allra sem á einhvern hátt undir-
bjuggu eða hjálpuðu til við undir-
búning og á mótinu sjálfu.
Fyrir hönd undirbúningsnefndar,
Úlfhildur Grímsdóttir.
8
Aðventfréttir