Aðventfréttir - 01.01.2002, Blaðsíða 6

Aðventfréttir - 01.01.2002, Blaðsíða 6
Trúboðar Hefur þú gengið á milli húsa og selt bækur? Eða spurt fólk hvort það hafi áhuga á að taka þátt í biblíu- rannsókn? Þetta er einmitt það sem nemend- ur á skóla sem heitir „Black Hills Mission College of Evangelism" í Suður Dakóta, USA, eru að fást við. Louis Torres (prestur) og kona hans Carol stofnuðu skólann árið 1997. Hugmyndin var að kenna ungu fólki að standa fast á því sem þau trúa og deila trú sinni með öðrum. Þetta hófst allt þegar Louis Torres var í hemum. Hann var á þriggja mánaða skyndihjálparnámskeiði og heillaðist af því hve mikið var hægt að læra á þessum stutta tíma. „Ef það er hægt að þjálfa „life savers" á þremur mánuðum, þá hlýtur að vera hægt að þjálfa „soul savers" líka á þessum tíma.", hugsaði hann með sjálfum sér. Og í tengslum við prest- starf sitt hélt hann námskeið um út- breiðslustarf í kirkjum víðsvegar í Bandaríkjunum. Louis og Carol vinna í náinni samvinnu við „Adventist Laymen's Services and Industries" (ASI). Síð- astliðin þrjú ár hefur fólk frá Black Hills í samvinnu við ungt fólk frá ASI haldið opinberar samkomur á fjögurra vikna tímabili, í ágúst. Þau vinna saman í 3-4 manna hópum og á einu kvöldi heimsækja þau 60-70 hús með könnun á and- legum áhugamálum og bjóða fólki að koma á samkomuröð sem kallast „Opinberun, loforð, von" Árið 1999 héldu þau opinberar samkomur í Orlando, Florida. Þau voru bjartsýn og sóttu 350 stóla fyrs- ta kvöldið. Engin bjóst við miklum fjölda. Greg Wallin, einn af þeim sem hafa útskrifast frá Black Hills rifjar upp; „Ég var í bænahóp þannig að ég fór ekki á fyrstu samkomuna. Á meðan við báðum heyrðum við unga fólkið bera fleiri stóla inn í sal- inn. Við lofuðum Guð og héldum áfram að biðja." Um 400 manns komu á fyrstu samkomuna, og að meðaltali 4-500 eftir það. 120 manns skírðust eftir þessar samkomur vegna vinnu unga fólksins. Síðastliðið sumar voru sam- komurnar haldnar í Atlanta, og norðmaður nokkur sem tók þátt í undirbúningnum hafði á orði; „Ég kom hingað til að læra hvernig ég ætti að ná til annarra með boðskap- inn. En það sem ég man best er mín eigin lífsreynsla. Áður, hélt ég að Að- ventboðskapurinn væri dauður og leiðinlegur, en núna hef ég upplifað trúna sem eitthvað persónulegt og uppsprettu gleði í lífi mínu. Það er ótrúleg lífsreynsla að brenna fyrir Krist. Hefur þú áhuga á að upplifa eitt- hvað svipað? Nú í haust koma Lou- is, Carol og Greg til Noregs og halda námskeið. Það verður spennandi og áskorun fyrir þá sem taka þátt. Það mun breyta þér, andlega lífi þínu og sambandi þínu við fólk í kringum þig. Viltu prófa? For more information: European Bible School - Black Hills training PO Box 23 NO-3331 Skotselv Norway (47) 32 25 20 90 ebss@online.no Make a difference ! AucjhsP 15 - NovemPer 16\ JfCOJl 'Getoutof * Stie*d 310 Comf°n t0 'Meet*eWn °nthsinNor AVer;e„t P<;'nw<íC„eiv ;v P Oft®or Uag c„CiI£rS,> •ssioti c0// es, fou olleSenf tv aers o/ Matteson Institute of Evangelism European Bible School of Health and Agriculture www.GuropGanbiblGschool.com The Matteson Institute of Evangelism is operated by the Norwegian Union of SDA EBS is part of the Heartgood Foundation which is a supportive ministry of the SDA 6 Aðventfréttir

x

Aðventfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.