Aðventfréttir - 01.02.2008, Qupperneq 5
Myndir af unglingum úr skólanum.
r n honum, sem í oss verkar
meS kraftí sínum og megnar aS
gjöra iangt fram ejfír allt [saé,
sem vér bíSjum eSa skynjum,
honum sé dýrð f kírkjunní og í
)<krístí Jesú um öll ævískeíð,
öld eftír öld. /\men
Ef. 5=70
Fjárhagur Suðurhlíðarskóla
og tryggð Guðs
Ekki alls fyrir löngu var fjárhagsleg
staða Suðurhlíðarskóla mjög erfið.
Skólinn var að sligast undan skuldum
sem hlóðust upp í hverjum mánuði
vegna lána sem tekin voru til að mæta
almennum rekstrarkostnaði skólans. Á
síðustu árum höfum við séð kraftaverk
gerast í skólanum okkar.
Endurskoðun ársins 2005-2006, sem
gerð var í ágúst 2007, sýndi algjöran
viðsnúning í fjárhagslegri velferð
skólans. Þessi jákvæða þróun í fjár-
málum okkar varð m.a. vegna örlætis
stjórnar Kirkjunnar okkar, sem ákvað að
fella niður þær skuldir sem safnast
höfðu saman í gegnum árin. Þetta, auk
nokkurra annarra þátta, hefur algjörlega
breytt Ijárhagstöðu Suðurhlíðarskóla.
Þetta sýnir að Guð hefur ekki yfirgefið
þennan dýrmæta skóla heldur blessar
starfssemi þessarar stofnunar með
þeim hætti að hún getur áfram verið eitt
aðal boðunartæki kirkjunnarokkar.
Einn stór þáttur í fjárhagslegri velferð
skólans er gjafmildi ykkar safnaðar-
meðlima, sem hafið styrkt fjölskyldur
sem annars gætu ekki sent barnið sitt í
Suðurhlíðarskóla. Slíkrar hjálpar er enn
þörf og fyrir hönd skólanefndar langar
mig að hvetja ykkur til að sýna gjafmildi
ykkar og Guð mun blessa ykkur.
Suðurhliðarskóli leggur metnað sinn í
að veita góða kristna menntun og við
erum mjög lánsöm hve starfsfólkið gefur
sig allt I starf skólans og deilir sömu
hugsjón. Nemendaljöldinn er nú 46,
sem er töluverð Ijölgun frá því í haust
en þá hófu 38 nemendur nám. Hefði
nemendafjöldinn verið 38 allt árið líkt og
í byrjun skólaárs hefði skólinn verið
rekinn með töluverðu tapi en með
þessum nemendaflölda er reksturinn í
góðu jafnvægi.
Ég get aðeins þakkað Guði fyrir að gera
þessa jákvæðu þróun í Suðurhlíðar-
skóla mögulega vegna örlætis
Kirkjunnar og safnaðarmeðlima og
flölgun nemenda. Vinsamlegast haldið
áfram að styðja við bakið á skólanum,
því það er það sem Guð vill að þið
gerið. Vinsamlegast munið einnig eftir
skólanum I bænum ykkar, því bænin er
lykillinn að árangri.
Judel Ditta
Beðið fyrir Suðurhlíðarskóla
Við í bænahópnum höfum verið að biðja sérstaklega fyrir Suðurhlíðarskóla,
kennurum, stjórnendum og nemendum þar. Þar sem fjárhagsstaða skólans var
slæm í haust vegna fámennis ákváðum við að biðja sérstaklega fyrir aukningu í
nemendafjölda. Við höfum því beðið fyrir því að nemendum Ijölgi í 47 á árinu. í upp-
hafi nýs árs voru nemendur komnir upp í 47, lof sé Guði fyrir það. Nú er einn
nemandi þar að flytja erlendis og því er fjöldinn kominn niður í 46. Við munum því
halda áfram að biðja fyrir fleiri nemendum í skólann! Sameinumst öll í bæn um þetta
málefni.
Sandra Mar
Kristniboðsfrásagnir
Gjafir til kristniboðs eru teknar upp í kirkjum okkar hvern hvíldardag en hvað verður
um þær og hvernig gengur Kirkjunni okkar sem heild að uppfýlla það hlutverk sem
Guð ætlaði okkur?
Hægt er að nálgast upplýsingar um það hvert kristniboðsgjafirnar fara með því að
lesa kristniboðsfrásagnirnar sem eru til í söfnuðum okkar, fá sérstök DVD myndbönd
að láni frá skrifstofunni eða fara inn á vefsíðuna www.adventistmission.org Við viljum
einnig benda sérstaklega á að gefin eru út sérstakar kristniboðsfrásagnir fyrir börn.
(Efnið er allt á ensku).
Farið þvi og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og heilags
anda og kennið þeim að halda allt það, sem ég hefboðið yður. (Mt 28:19-20)
Þetta fagnaðarerindi um ríkið verður prédikað um alla heimsbyggðina öllum þjóðum
til vitnisburðar. (Mt 24:14)
AÐVENTFRÉTTIR • Febrúar 2008
5