Aðventfréttir - 01.02.2008, Side 6
Myndir: Guðmundur Brynjarsson
Andi spádómsins
Að taka afstöðu með Guði
Lífemi samboðíð þeim „sem halda boð Guðs og hafa vitnisburð Jesú.“
Davlð konungur upplifði í stjórnartíð
sinni að viss vanvirðing rlkti meðal
þegnanna gagnvart lögmáli Guðs....
Hann sá hvernig þessi vanvirðing gagn-
vart lögmáli hins hæsta opnaði gáttir
siðleysis og hrakti burt guðhræðslu,
helgun og kærleika til Guðs.... Hann sá
hin víðtæku áhrif fráhvarfs frá lögmáli
Guðs og hann vaknaði til sterkrar
vitundar um ætlunarverk sitt með Guði,
einlægni slna og helgun og honum
brann þrá til að færa réttlætisvitund
þjóðar sinnar á æðra svið um ókomna
tíð....
Hvert ætti að vera viðhorf fólks Guðs
nú á tímum? Við sjáum hversu lögmál
Guðs er fótum troðið á öllum sviðum.
Útlitið er dökkt fyrir komandi kynslóðir,
sem vilja halda á lofti lögmáli Guðs.
Afstaða þeirra er gagnger andstæða
ríkjandi fyrirlitningar og skeytingarleysis
samtlmans. Það er sem hinn almenni
kristni heimur hafi sameinast and-
kristnum I að fótum troða lögmál
Guðs....
Óhagganlegur grunnur okkar
Meðal alls hins skapaða um alheim
allan ríkir lögmál Guðs, og það sama
lögmál liggur til grundavallar tilveru
þessa heims. Kristur dó á krossinum til
þess að sameina hina mannlegu fjöl-
skyldu þeirri himnesku. Kristur var eina
von mannsins til frelsunar. Dauði hans
á krossinum var ekki til að fella lögmál
Guðs úr gildi, vegna þess að með
ógildingu þess yrði hann sjálfur forvígis-
maður syndar með yfirtroðslu sinni.
Hafi sá möguleiki verið fyrir hendi að
breyta lögmáli Guðs í heild eða að ein-
hverjum hluta til að koma til móts við
fallið mannkyn, þá um leið var kross-
dauði Krists óþarfur.
En lögmál Guðs er óumbreytanlegt að
eðli til og útilokað að hnika þartil megin-
reglu eða smæsta atriði. Þess vegna
ákvað Guð að sonurinn tæki á sig
syndabyrði mannsins og afleiðingar
þess til uppfyllingar lögmálinu, en með
því móti einu átti maðurinn möguleika á
fyrirgefningu og að geta talist uppfylla
lögmál Guðs. Það er réttlæti Krists og
fullkomin lyndiseinkunn hans sem Guð
meðtekur er hann tekur á sig syndir
okkar, hnökra og veikleika. Við erum
aftur á móti fangar vonarinnar er við fyrir
trú treystum á úthellt blóð frelsarans
okkurtil frelsunar.
Réttlæti Krists verður réttlæti okkar með
því að við höldum lifandi sambandi við
hann. Á þann hátt einan hættum við að
troða á lögmáli Guðs og verðum
þátttakendur í hinu guðlega eðli....
Jóhannesi var veitt innsýn í lokadægur
þessa heims (Op. 14.9-12), og hann sá
lýð Guðs sem hann lýsir svo: „Hér eru
þeir sem halda boð Guðs og hafa vitnis-
burð Jesú.“....
Guð starfar með lýð sínum að hann sitji
ekki í svartnættinu. Hann óskar þess
að við smyrjum augu okkar með
smyrslum svo að við fáum greint milli
ásóknar myrkraaflanna og hvatningar
Heilags anda. Við verðum að einbeita
okkur að þeim málum sem mest varðar.
Við verðum að kynnast Ritningunni
umfram það sem við höfum áður
kynnst. Hún er sá klettur sem veitir
okkur fótfestu í lífinu, því þar er að finna
allt það sem við og komandi kynslóðir
þurfum á að halda.
Mikilvægi trúar í framkvæmd
Við höfum tök á að lesa Biblíuna og
skilja uppfyllingu spádóma hennar og
sérhvað það sem varðar lögmál Guðs
sem og fórn Krists sem uppfyllingu lög-
málsins, og farið hús úr húsi og boðað
iðrun gagnvart Guði og trúna á Jesúm
Krist frá manni til manns líkt og Páll
postuli gerði á sínum tíma.....
Þegar Kristur fór héðan fékk hann sér-
hverjum fylgjenda sinna verkefni að
vinna. Þetta verkefni hvílir á herðum
hvers og eins okkar. Ef Guð talaði nú til
okkar mundi hann spyrja okkur líkt og
hann spurði Elía: „Hvað í ósköpunum
eru þið að gera hérna?"... Ég spyr því
hvort ekki sé fyrirliggjandi verkefni á
boðunarakrinum fyrir þig. Megi Guð
himnanna hers hrista upp í hverju og
einu ykkar. Þetta verkefni er ekki ætlað
prestunum einum, heldur ber sér-
hverjum að rannsaka Ritningarnar fyrir
sig að þær renni enn frekari stoðum
undir þá trú sem fyrir er í auðmýkt og
guðsótta....
Það er fyrirliggjandi verkefni fyrir ykkur
á heimilum ykkar, í næsta nágrenni, í
bæjum og borgum sem og í kirkjunni. í
| AÐVENTFRÉTTIR • Febrúar 2008