Aðventfréttir - 01.02.2008, Qupperneq 8
Teldu blessanir þínar!
Þá kom í Ijós að fjölskylda ritarans míns
átti hjól sem þau notuðu ekki lengur og
þau ákváðu að láta mig fá hjólið
ókeypis. Það kom okkur á óvart að sjá
áþreifanlega hluti sem við höfðum
fengið fyrir utan launin. Við þökkuðum
Guði fyrir þessar blessanir og ákváðum
að setja verðgildi á þessa hluti; Ég
hefði verið reiðubúinn að greiða 50
dollara fyrir hjól, afmælisgjöfin voru 15
dollarar, við skráðum einnig niður 20
dollara fyrir matinn þegar við fórum út
að borða með vinum, 25 dollara fyrir að
vera með fyrirlestur og að lokum 40
dollara fyrir aðra hluti. Við lögðum
þessa hluti saman fengum út samtals
150 dollara. Við ákváðum því að taka
10% af þessari upphæð og senda þá
peninga sem mánaðarlegt framlag
okkar til styrktar kristniboða sem við
styrkjum einmitt í hverjum mánuði um
15 dollara. Við erum síðan vön að gefa
10% af laununum okkar (fyrir utan
tíundina) í hvíldardagsskóla- og
guðsþjónustugjafir svo að við gerðum
það einnig.
Leyndarmálið að gleðilegri og gjafmildari tilveru.
Eftir Brian Kluth
„Hvern fyrsta dag vikunnar skal hver
yðar leggja í sjóð heima hjá sér það,
sem efni leyfa, til þess að ekki verði
fyrst farið að efna til samskota, þegar
ég kem" (1. Kor. 16,2).
Kannast þú við eitthvað af eftirfarandi?
• Hefur þér einhvern tíma fundist þú
ekki hafa nægar tekjur til að láta
enda ná saman?
• Hefur þú einhvern tíma fyllst von-
leysi yfir öllum þeim ítrekunum sem
þér hafa borist I póstinum vegna
ógreiddra reikninga?
• Hefur þú einhvern tíma verið óviss
um hve mikið þú ættir að gefa til
starfs Guðs?
• Hefur þú einhvern tíma fundið til
sektarkenndar yfir að hafa ekki
getað gefið trúfastlega og að fullu til
safnaðarins sem þú tilheyrir vegna
annarra fjárhagsskuldbindinga til
sjálfstæðra stofnanna?
• Ef þú ert gift/giftur, óskarðu þess að
þú og maki þinn mynduð vera oftar
sammála um hve mikið, hvenær og
hvar þið gefið peninga ykkar til
starfs Guðs?
• Óskarðu þess að þú ættir meira fé
aflögu til að gefa til sérstakra þarfa?
Fyrir nokkrum árum, þá barðist ég við
mörg af ofangreindum atriðum í mínu
lífi, þar til ég rakst á þetta biblíuvers:
„Hvern fyrsta dag vikunnar skal hver
yðar leggja í sjóð heima hjá sér það,
sem efni leyfa, til þess að ekki verði
einstaklingc
•sta dag^^
baka ÆL
f
fyrst farið að efna til samskota, þegar ég
kem“ (1. Kor. 16,2).
Ég mun aldrei gleyma fyrsta
sunnudeginum eftir að ég fann þetta
vers. Ég bað Sandi konu mína að
setjast hjá mér svo að við gætum „talið
blessanir okkar”. Hún leit hissa á mig og
spurði hvað ég meinti eiginlega með
því? Ég sagði henni að ég væri ekki
alveg viss hvað ég meinti, en að í 1Kor.
16.2 væri gefið I skyn að Guð vildi að
við sem kristnir einstaklingar
gæfum okkur tíma fyrsta dag
vikunnar til að llta tilbaka
yfir liðna viku til að sjá
hvernig Guð hefði séð
fyrir þörfum okkar og
til að leggja til hliðar
pening sem við
myndum nota í starf
Guðs.
Svo að með blað og^
blýant við höndina
byrjuðum við að hugsa
tilbaka yfir síðustu viku. Það
fyrsta sem við skrifuðum niður voru
launin okkar.
Blessanir koma í Ijós
Við mundum eftir að við höfðum farið út
að borða með vinum, og að þeir hefðu
greitt fyrir matinn. Við höfðum fengið
peninga í afmælisgjöf, og ég hafði
fengið fjárupphæð fyrir að halda fyrir-
lestur. Við skrifuðum þetta allt saman
niður á blaðið og þegar við hugsuðum
okkur betur um, þá mundi ég eftir því að
ég hafði ætlað mér að kaupa 5-gíra hjól.
Við gáfum til starfs
Guös full af gleði og
þakklæti- ekki af því
aö viö þurftum þess,
heldur af því aö okkur
langaði til þess!
Og listinn hélt áfram að
stækka
Næsta sunnudag settumst við aftur
niður og töldum blessanir okkar. í fyrstu
gátum við ekki munað eftir neinu sér-
stöku og vorum við það að gefast upp.
Þá mundum við eftir fáeinum hlutum
sem Sandi hafði fengið á útsölu og
nokkrum öðrum hlutum sem ég hafði
fengið gefins úr vinnunni. Þegar við
lögðum saman upphæðirnar komumst
við að raun um að við höfðum fengið
samtals 120 dollara í óséðum
blessunum. Við tókum því 12
dollara frá (10% af
„blessunum” okkar) og
bjuggum til sérstakan
blessunarsjóð. I upp-
hafi hverrar viku
tókum við til hliðar
blessunum
dollara
„ble
Hk bJ
m ■ 1
pening i samræmi
við það sem hafði
m gerst í vikunni á
'undan. Síðan gátum
við notað þá peninga sem
söfnuðust í þann sjóð til að
styrkja kristniboða eða önnur sér-
stök málefni sem við vildum styrkja.
Og jafnvel stórviðburðir
áttu sér stað
Stöku sinnum upplifðum við nokkra
stóra atburði. Einu sinni þurftum við að
kaupa bil og vinir okkar ákváðu að selja
okkur bílinn sinn á 2000 dollara í
staðinn fyrir þá 3000 dollara sem þeir
hefðu getað fengið fyrir hann. Vegna
þess að við spöruðum þarna 1000
dollara gátum við sett 100 dollara í
Orðið „ráðsmennska” mætti skýra á einfaldan hátt sem „að gera Guð að miðdepli lifs okkar”.
| AÐVENTFRÉTTIR • Febrúar 2008