Aðventfréttir - 01.02.2008, Side 9
viðbót í blessunarsjóðinn. Venjulega
hefðum við aldrei tekið eftir þessum
„blessunum" (og svo sannarlega ekki
gefið aukalega vegna þeirra) nema af
því að við höfðum lesið 1Kor 16.2 og
ákveðið að setjast niður á hverjum
sunnudegi og lita til baka yfir liðna viku.
Með því að telja blessanir okkar
komumst við að því að eftir að hafa
skilað tíund gátum við gefið heil 10% af
laununum í hvíldardagsskóla- og
guðsþjónustugjafir og samt átt nóg
aukalega til að gefa til kristniboðs, fólks
I neyð, og til annarra kristilegra mál-
efna.
Óvænt uppgötvun
Þegar við vorum að gera skatta-
skýrsluna okkar komumst við að því að
launin yfir árið höfðu verið 15.000
dollarar. Þegar við skoðuðum listann
yfir gjafir og styrki frá okkur sáum við að
við höfðum gefið 1500 dollara í hvíldar-
dagsskóla- og guðsþjónustugjafir.
Þegar við svo tókum saman það sem
við höfðum gefið úr blessunarsjóðnum
komumst við að raun um að við höfðum
gefið aukalega samtals 2500 dollara í
ýmis kristniboð, sérstakar þarfir og
kristilegar stofnanir. Ég hugsaði með
mér að þetta gæti ekki verið rétt, það
hlýtur eitthvað að vera að reiknivélinni!
En þegar ég fór í gegnum listann yfir
„blessanirnar” þá uppgötvaði ég mér til
mikillar furðu að þær „blessanir” sem
við höfðum skrifað niður (fyrir utan
launin) hljóðuðu upp á samtals 25.000
dollara! Við höfðum í raun gefið auka
2500 dollara til starfs Guðs fyrir utan þá
1500 dollara sem við gáfum til
safnaðarins okkar! Það var ótrúlegt til
þess að hugsa að við höfðum getað
gefið 4000 dollara til starfs Guðs á
aðeins 15.000 dollara árslaunum. í
upphafi ársins höfðum við haft áhyggjur
af því hvernig við gætum látið enda ná
saman, en með því að „telja blessanir
okkar” frá sunnudegi til sunnudags þá
opnuðust augu okkar fyrir þvl á hversu
marga vegu Guð var að sjá um okkur.
Það var í miklu þakklæti og gleði sem
við sendum 10% af þessum blessunum,
óvæntu tekjum, sparnaði og gjöfum til
starfs Guðs. Þegar við hugsuðum betur
um þetta, komumst við að þeirri niður-
stöðu að Guð hafði í raun gefið okkur
lífsstíl miðað við það að við værum að
fá 40.000 dollara í árslaun, þótt árs-
launin okkar væru aðeins 15.000
dollarar!
Við héldum áfram að telja blessanir
okkar í hverri viku á nýju ári. í lok þess
árs voru árslaunin okkar 17.000
dollarar, þar af höfðum við gefið 1700
dollara í hvíldardagsskóla- og
guðsþjónustugjafir, og höfðum þar fyrir
utan gefið aðra 5000 dollara til annarra
kristinna málefna! Árið þar á eftir gáfum
við aukalega 6000 dollara til starf Guðs
fyrir utan þau 10% sem fóru I hvíldar-
dagsskóla- og guðsþjónustugjafir. Með
því að telja blessanir okkar vikulega á
þennan hátt og leggja til hliðar auka-
pening í blessunarsjóðinn, gátum við af
mikilli gleði gefið tvöfalt og þrefalt af því
sem við höfðum venjulega gefið til starfs
Guðs.
Oft á tíðum virtist það heimskulegt að
halda áfram að gefa á þennan hátt, en
samt sem áður erum við svo þakklát
fyrir þann sparnað, þær blessanir, og þá
aukapeninga sem Guð hefur veitt okkur,
og því viljum við gefa hluta til baka með
mikilli gleði. Við gáfum ekki af því að
við þyrftum þess, heldur vegna þess að
okkur langaði til þess. Sumt fólk segir
að við eigum að gefa til þess að öðlast,
en Guð var að sýna okkur að besta
leiðin til að gefa er að opna augu okkar
fyrir öllu því sem Guð hefur gefið okkur
- og síðan að leggja til hliðar hluta af
þessum blessunum Guðs til að gefa
það tilbaka í gleði og gjafmildi.
Gamall sálmur
Þetta minnir mig á gamlan sálm á
ensku: „Count Your Blessings”, eða
„Teldu blessanir þínar" sem hefst
þannig: „Teldu blessanir þínar, nefndu
Tíg na ]^)rottín meÖ eígum
þínum og meé frumgróSa
allrar uppskeru þínnar,
\>á munu hlöSur ínar
verSa nasgtafullar og vín-
berjj
vín
alögurínn flóa út af
rþróm þínum.
0>0.?-lo
hverja fyrir sig. Teldu blessanir þínar og
sjáðu hvað Guð hefur gert.“ Það er svo
sannarlega spennandi reynsla fyrir þann
sem byrjar að fara eftir því sem stendur
[ 1Kor. 16.2. Það er bæn mln að þú
munir einnig byrja að telja blessanir
þínar í hverri viku og byrja að leggja til
hliðar í „blessunarsjóð" til að hjálpa þér
að geta gefið með meiri gleði og gjaf-
mildi til starfs Guðs.
Það er aldrei að vita á hve dásamlegan
hátt þetta gæti haft áhrif á lífið þitt,
söfnuðinn þinn, og á það fólk og þau
verkefni sem þú gætir styrkt með því að
telja blessanir þínar á þennan hátt.
Hvernig getur þú talið
blessanir þínar?
Hér á eftir koma nokkur mikilvæg
atriði sem hafa hjálpað mér að
koma vikulega auga á blessanir og
umsjá Guðs í mínu daglega lífi.
1. Reynið sem fjölskylda, par eða
einstaklingur, að taka frá
ákveðinn tíma í hverri viku til að
telja blessanir ykkar með blað
og blýant við hönd. Við Sandi
horfum tilbaka yfir liðna viku á
hverju sunnudagskvöldi áður en
við förum að sofa, og núna erum
við með stílabók sem er yfirfull
af atriðum sem við höfum skráð
niður yfir síðustu ár, þar sem við
höfum séð hvernig Guð hefur
blessað okkur umfram venjuleg
laun okkar.
2. Hugsaðu tilbaka um eftirfarin
atriði og skrifaðu niður það sem
þú mannst eftir:
a. Aðaltekjur/laun? Ef þú
fékkst greidd laun ( vikunni
skrifaðu þá upphæðina niður.
b. Óvæntir aukapeningar?
Gjafir, yfirvinna eða laun fyrir
aukavinnu, vaxtatekjur, sala á
eignum, endurgreiðsla, arfur
o.s.frv.
c. Gestristni annarra? Matur,
gisting, skemmtun o.s.frv.
d. Sérstök hjálp? Hjálp við
viðgerð á bíl eða húsi,
neyðaraðstoð, notkun tækja og
tóla sem hafa verið fengin að
láni, frí barnapössun o.s.frv.
e. Afsláttur eða útsöluvörur?
Fatnaður, búsáhöld, sparnaður
vegna kaupa á flóamarkaði/
útsölumarkaði, bílahlutir, tæki og
tól, húsgögn o.s.frv.
f. Kaup nýrra eigna? Þegar ég
og konan mín kaupum stóran
hlut eða dýran hlut þá skráum
við stundum kostnaðinn vegna
kaupanna i blessunarsjóðinn og
gefum auka 10% til starfs Guðs.
3. Skrifaðu niður fjárhagslegt gildi
hvers atriðis fyrir sig EÐA (mjög
mikilvægt) skrifaðu niður þá upp-
hæð sem þú hefðir verið tilbúin
(nj að evða í þetta atriði. Til
dæmis: Ættingi minn gaf mér
vélsög sem hafði kostað hann
1000 dollara og sem hann þurfti
ekki lengur á að halda. Ég hefði
aldrei haft efni á því að kaupa
sög fyrir 1000 dollara en ég
hefði verið tilbúinn að eyða 200
dollurum í notaða vélsög. Þess
vegna skrifaði ég verðgildi þessa
atriðis sem 200 dollara (og ekki
1000 dollara). Ég endaði því á
þvi að gefa 20 dollara í viðbót í
AÐVENTFRÉTTIR • Febrúar 2008