Bræðrabandið - 01.07.1974, Side 7
Bls. 7- BRÆÐFABANDIÐ -6.-7.tbI.
Það var ánægjulegt að heimsækja ísland á férð minni
til Bandaríkjanna fyrir nokkru. Mjðg gaman var að mæta
systkinum á þeim stöðum sem ég gat komizt til. Vildi ég
gjarnan hafa farið víðar hefði tíminn leyft það. Það er
von okkar að ef enhver af trúsystkinunum á íslandi ferðist
um Skandinaviu, að þau leggji þá leið sína um Vejlefjord
og til okkar. Þau eru hjartanlega velkomin.
Við sendum okkar
trúsystkina.
hjartans kveðjur til vina
Svein B. Johansen
og
ÚTHLUTUn TIL
V CSJMAiJ^ J^J A.Z IJ9HQJL
1 sambandi við gosiö á Heimaey í janúar í fyrra sendu
Samtök aöventista á Norðurlöndum svo og N-Evrópudeildin
fjárupphæð til islands. Nam þessi fjárupphæð ásamt
gjöfum frá systkinum á íslandi um 3 milljónum ísl.kr.
Gjöf þessari fylgdu þau ummæli ein að hana átti að nota til
hjálparstarfs vegna gossins á Heimaey. Stjórn aðventista
á íslandi kaus nefnd til að annast úthlutun úr þessum sjóði
og skipuðu hana konferensformaður og gjaldkeri, formenn
Vestmannaeyjasafnaðar og formaður systrafélagsins þar.
Nefndin hefur að mestu leyti lokið stðrfum þar sem
úthlutun er nær lokið. Úthlutaö var þrisvar sinnum til
systkina i Vestmannaeyjasöfnuði. í fyratu úthlutun var
úthlutað til allra- ákveðinni upphæð til einstaklinga,
hjóna, unglinga og barna. í annarri úthlutun var einungis
úthlutað til aldraöra, þeirra, sem enga vinnu höfðu haft.
Talað var svo um það að síðasta úthlutun færi fram um það
leyti, sem fólk færi heim aftur. Þessi þriðja og síðasta
úthlutun er nú um garð gengin og var þá úthlutað til allra
eins og í fyrsta skiptiö. Einnig var úthlutað kr. 300.000.00
úr þessum sjóði til Vestraannaeyjakaupstaðar í byrjun gossins.
Eftir eru nú í sjóðnum um kr. 1000.000.00 sem ætlaðar eru
til uppbyggingarstarfs í söfnuðinum í Vestmannaeyjum,s.s.
til viðgerðar og endurbóta á kirkjunni o.fl. en slíkt er
bein úthlutun til þeirra, sem heim snúa.
Nýlega var sent yfirlit til gefendanna um það hvernig
sjóðnum hefði verið variö. Er komið bréf aftur þar sem segir
að öll ráðstöfun sjóðsins sé fullkomlega í samræmi við óskir
gefendanna.
S.B.