Bræðrabandið - 01.09.1974, Síða 3
Bls.3 - BRÆÐRABANDIÐ 8-9 tbl.
Stóra vikan er árviss atburður í kirkjuári okkar aðventista.
Upphaflega byrjaði hún þannig að fólk fór út til þess að
selja bækur. Það gaf eina viku í þetta starf og andvirði
bókanna var gefið til málefnis Guðs. Einnig dreifði fólkið
ritum og öðru prentuðu máli. Nú hafa tímarnir breytzt og
minna er um það að fólk fari út með bækur og rit í þessari
viku. En það hefur haldist að fólk gefi til málefnis Guðs
í þessari viku. Ýmis verkefni hafa notið góðs af þessari
fórn. Við á íslandi vorum fyrir nokkrum árum þiggjendur
stóru viku fórnarinnar. í þetta sinn verður tekið á móti
gjöfum Stóru vikunnar hvíldardaginn 14. september. Systkinin
eru beðin að minnast þess og gefa ríkulega þann dag.
EFTIR ELSIE GARVIN.
Glataði sonurinn í sögu Jesú var auðmýktur yfir sínu
auma ástandi sem svínahirðir. Hann hafði þekkt betri dag
Það er öðruvísi með okkur í dag sem erum ánægð með ,,hismið,,
(hýðið), því við höfum sennilega aldrei þekkt neitt betra.
t,g ^erði mlr ljóst nýlega að Ig lifði á hismi, því að
Ig^llt mer nægja framkvæmdir annarra. Ég var svo glöð yfir
frásögnum um trúboðsstarf og vi’ðleitni til útbreiðslustarfs
sem sagðar voru frá ræðustólnúm. En þegar sagan var á enda
fann Ig að eitthvað vantaði, eins og aðrir hefðu fundið ;
kjamanní kristilegu lífi en Ig sæti eftir með hismið.