Bræðrabandið - 01.12.1974, Qupperneq 4
Bls. 4 - BRÆÐRABANDIÐ 12.tbl.
Jesús óx að visku. Hann notfærði sér hvert tækifæri til
vitsmunalegs þroska.
Við þetta vil ég flýta mér að bæta að það sem heimurinn
telur góða menntun þarf ekki endilega að vera satt og gott.
Sonn viska og þekking kemur frá Guði. Sannmenntaður maður er
sá sem getur á hverju rannsóknarsviði séð guðlega veru að verki.
Hann hugsar hugsanir Guðs eftir hann. Sú menntun sem leiðir
í burtu frá Guði er fölsk. Öll sönn menntun leiðir til hans
vegna þess aö hann er upphaf viskunnar.
Það er gott þegar hægt er að mennta æskuna í kristilegu
umhverfi, þar sem Guð er heiðraður og Biblían er viðtekin
sem orð Guðs, þar sem litið er á manninn sem handaverk Guðs en
ekki sem tilviljunarkennda framleiðslu. Fræðileg þekking á
Jesú Kristi og sannleika hans án samsvarandi viðbragða hjartans
leiðir aðeins til ofstækis eða hræsni.
Jesús sigraði freistingu sem maður, en ekki sem Guð. Hans
var freistað á allan hátt eins og okkar, án syndar, segir Biblían.
Heb.4,15. Hann getur sett sig í okkar spor. Þýðingarmesta
ákvörðunin fyrir hvern ungan mann er að gefa líf sitt algerlega
Jesú Kristi sem frelsara sínum og Drottni.
Á síðustu árum höfum við orðið vitni að stórkostlegu
fyrirbrigði meðal ungs fólks. Um víða veröld hafa margir snúiö
sér í burtu frá kröfugöngum og mótmælum síðustu ára til andlegra
hluta - einkum kenninga Krists. Jesús er orðinn þekktur og
vinsæll persónuleiki meðal ungs fólks í dag. Við höfum haft
jesúbyltinguna og jesúfólkið. Ungt fólk hefur verið að lesa
Biblíuna, sérstaklega hinar nýju þýðingar, meira en áður.
Jesú nýtur í dag vinsælda meðal ungs fólks sem ekki á sinn líka
á okkar tímum. Mín bæn er að þetta geti verið raunverulegt,
að það verði meira en tíska.
Ungt fólk í dag getur vaxið að náð hjá Guði eins og
Jesú gerði. Leyfið Jesú Kristi að verða fyrstum og síðustum
í lífi ykkar. Ef þið hafið aldrei gefist honum, þá skuluð þið
gera það núna, þegar þið lesið þessar línur og Heilagur andi
talar í hjarta ykkar.
JESÖS VAR VINSÆLL
Síðasta sviðið sem við skulum íhuga er sú staðreynd að Jesús
óx að náð hjá mönnum. FÓlk sem komst í snertingu við hann elskaði
hann. Sem ungur maður var hann kurteis, vingjarnlegur, hugsunar-
samur - sannur drengur. Það er sannarlega þörf fyrir þessa
eiginleika í dag, og á þessu sviði getur Jesú Kristur verið
óviðjafnanlegt fordæmi fyrir æskufólk í dag og reyndar fyrir
fólk á öllum tímum. Ef þið athugið vandlega líf Jesú munið þið
sjá að allir hópar manna löðuðust að honum. Jafnvel lítil
börn - sem greina fljótt hjáróma rödd ef þau heyra hana - þyrptust
til Jesú, af því að þau vissu að hann var raunverulegur og sannur.