Bræðrabandið - 01.12.1974, Page 7
Bls. 7 -BRÆÐRABANDIÐ 12.tbl.
SYNDIN FJARLÆGÐ.
Annað skilyrðið fyrir því að bæn sé svarað er að við viljum
að öll synd sé fjarlægð úr lífi okkar. Þegar við komum að
þessu öðru skilyrði fara mörg okkar að tregast við vegna þess að
við elskum sumar af syndum okkar og við viljum ekki sleppa þeim.
Sumar af þeim kunna að vera leyndar syndir, sem konur okkar eða
eiginmenn okkar eða prestar okkar vita ekkert um, en Guð þekkir
þaer allar. Biblían er skýr varðandi þetta triði:"Ef ég hygg á
illt í hjarta mínu, þá heyrir Drottinn ekki." (Sálm.66,18)
Þriðja skilyrðið fyrir því að bæn sé svarað er að hafa trú
á það, að Guð muni svara bænum okkar. "En án trúar er ómögulegt
að þóknast honum" (Heb.11,6). "Til þess að trúfesta yðar, langt-
um dýrmætari en forgengilegt gull, sem þó stenst eldraunina,
gæti orðið yður til lofs og dýrðar og heiðurs við opinberun
Jesú Krists." (l.Pét.1,7) "Svo kemur þá trúin af boðuninni, en
boðunin byggist á orði Krists." (RÓm.10,17)
Fjórða skilyrðið fyrir því að bæn sé svarað er að biðja
samkvæmt Guðs vilja. Mörgum sinnum biðjum við um hluti sem
Guð gæti ekki í sínum mikla kærleika gefið okkur. Við slíkri
beiðni gefur Guð okkur neikvætt svar. Það þarf að hafa til að
bera andlegan þroska til að skilja það þegar Guð segir nei. Þess
vegna verðum við ávallt að biðja um að hans vilji verði. "Og
þetta er sú djörfung, sem vér höfum til hans, að ef vér biðjum
um eitthvað eftir hans vilja, þá heyrir hann oss. Og ef vér
vitum, að hann heyrir oss, um hvað sem vér biðjum, þá vitum vér,
aö oss eru veittar þær bænir, sem vér höfum beðið hann um."
(II.jóh.5.,14-15) Þetta er eitt af athyglisverðustu versum í
allri Biblíunni og ég minni Guð á þetta fyrirheit sem hér er
gefið, mörgum sinnum á dag. Þegar við biðjum samkvæmt vilja
hans getum við verið fullviss um að hann mun veita okkur svar.
Guð svarar hverri einlægri bæn.
Fimmta skilyrðið fyrir því að bæn sé svarað er fúsleiki til
að bíða eftir því að Guð svari. Þetta er stundum hið erfiðasta
skilyrði að uppfylla. Við erum óþolinmóður lýður. Við viljum
að bænum okkar sé svarað tafarlaust. Ég man eftir einum manni
sem bað trúlega á hverjum degi í 52 ár fyrir tveimur vinum sínum
áður en bæn hans var svarað. Hann hafði gengið x sáttmála við
Guð. Hann vissi að bæn hans var samkvæmt Guðs vilja svo að
hann hélt áfram að biðja með þolinmæði. í Hebreabréfinu 10, 36
segir: "Því að þolgæðis hafið þér þörf, til þess að þér úr býtum
berið fyrirheitið, er þér hafið gjört Guðs vilja."
Þessi fimm skilyrði fyrir bæn hef ég ávallt í huga í bæna-
lífi mínu. Þau hafa gefið mér kraft í bæn minni og ég er viss
um að þau munu gefa öðrum öruggt tak á armlegg bænarinnar.
En eftir að ég hef uppfyllt þessi fimm skilyrði gerir Drottinn
það skýrt fyrir mér að það voru ákveðnir hlutir sem ég verð að
biðja um daglega í mínu eigin lífi. Það er þýðingarmikið að við
biðjum fyrir sjálfum okkur fyrst, svo að við getum öðlast kraft,
þegar við biðjum fjrrir öðrum. Það fyrsta sem ég bið Guð um er
að hann hreinsi mig af allri synd og geri mig hreint og heilagt