Bæjarblaðið - 29.08.1990, Qupperneq 1
29. tbl. 2 árg. Miðvikudagur 29. ágúst 1990
BÆJARBLAÐIÐ
BLAÐ í STÖÐUGRISÓKN!
Hraðfrystihús Keflavíkur:
Hluthafar stofna Stakksvík hf.
Hluthafar í Hrað-
frystihúsi Keflavík-
ur hafa stofnað nýtt
hlutafélag undir nafn-
inu Stakksvík hf. Hlut-
hafar eru Samband
íslenskra samvinnufé-
laga, Keflavíkurbær,
Verkalýðs- og sjó-
mannafélag Keflavíkur
og Kaupfélag Suður-
nesja.
Stórmarkadur Kefía-
víkur opnar á föstudag
Þessa dagana er unnið
að lokaundirbúningi
vegna opnunar hins nýja
markaðar við Iðavelli í
Keflavík, sem fengið hef-
ur nafnið Stórmarkaður
Keflavíkur. Verður mark-
aðurinn opnaður næst-
komandi föstudag kl. 10
V
árdegis.
Meðal nýunga í tækni sem
markaðurinn hefur tekið í
þjónustu sína er strika-
merkjakerfi sem nú er að
ryðja sér til rúms í verslun-
um. Þá má jafnframt geta
þess að kjötvinnslan verður
þannig gerð að viðskiptavinir
geta fylgst með kjötiðnaðar-
mönnum við vinnu sína.
Ymsar deildir verða innan
Stórmarkaðs Keflavíkur,
m.a. snyrtivörudeild og fata-
deild. I matvörudeildinni
verður meðal annars að finna
salatbar og grænmetistorg.
Tilgangur hins nýja fé-
lags er útgerð og fisk-
vinnsla, kaup og sala
eigna, rekstur fasteigna,
lánastarfsemi og önnur
skyld starfsemi. Hlutafé
samkvæmt stofnsamningi
félagsins er kr. 400 þús-
und sem skiptast þannig
að Sambandið leggur fram
264.040 kr., Keflavíkur-
bær 78.840 kr., Kaupfé-
lagið 53.920 kr. og
Verkalýðsfélagið 3.200
kr.
Þeir aðilar sem standa
að stofnun Stakksvíkur
ákveða að væntanlegt and-
virði hlutabréfa þeirra í
Hraðfrystihúsi Keflavíkur,
sem stafar frá sölu þeirra til
hluthafa í Útgerðarfélagi
Akureyringa, verði lagt
fram sem hlutafé í félaginu
þegar stjórn þess félags
kallar eftir því.
Hafnarmálin í Höfnum:
Kostnaðaráætlun
gerð á næstunni
mábátaeigendur í
Höfnum héldu fund
nú í sumar vegna
ástandsins í hafnarmálum
hreppsins. Var samþykkt
ályktun á fundinum og
hún síðan send yfirvöld-
um. Að sögn Grétars
Kristjónssonar sem sæti á
í hreppsnefnd hefur lítið
gerst í málinu síðan.
,,Við munum þó eiga við-
ræður við Vitamálastofnun á
næstunni og ætlunin er að
láta þá gera fyrir okkur kostn-
aðaráætlun. Síðan munum
við væntanlega reyna að
herja á fjárveitingarvaldið",
sagði Grétar í samtali við
blaðið.
„Það liggur Ijóst fyrir að
hér vilja menn vera með
smábáta, þar sem menn róa
á Eldeyjarsvæðið, suður í
Reykjanesröst og undir
Hafnaberg. Tímamunurinn
frá því að róa á þessa staði frá
Höfnum annarsvegar og
Sandgerði hinsvegar, nemur
allt að einum og hálfum tíma
og það er mikill munur þegar
um smábáta er að ræða.
SUMARLEIKUR KODAK EXPRESS
KODAKvflfcKRIUM
BREGÐA Á LEIK
Verið með í sumarleik
HLJÓMVAL
Þegar mest var í sumar
réru 27 smábátar héðan. Ef
vióunandi hafnaraðstaða
væri fyrir hendi, þá væru
örugglega á milli 30-40
smábátar hér að staðaldri. Ég
held að menn átti sig ekki al-
mennilega á þessu“, sagðl
Grétar Kristjónsson.