Bæjarblaðið - 29.08.1990, Síða 10
10 BÆJARBLAÐIÐ — Frjálst og óhád
Fréttir:
Japanskir auðjöfrar:
Vilja Bláa lóns
sýningu í Japan
New York ferð þeirra
Hermanns Ragnars-
sonar og Guðmundar
Guðbjörnssonar, sem
reka baðhúsið við Bláa
lónið, hefur vakið óskipta
athygli. Bæjarblaðið var
með í för þegar lónið var
kynnt í New York og birti
um það grein í síðasta
blaði. Nú hafa tímaritin
Við sem fljúgum og Frjáls
verslun óskað eftir grein-
inni til birtingar og munu
þau fjalla um þessa ferð á
næstunni. í kjölfar New
York ferðarinnar er fyrir-
hugað að fara með slíkar
kynningar víðar, því óskir
hafa komið um það frá
Japan og Þýskalandi.
Eins og Morgunblaðið
greindi frá í síðustu viku var
auðjöfurinn Mitsuo Sato
staddur hér á landi í síðustu
viku, en hann hyggst reisa
eftirlíkingu af Höfða, mót-
tökuhúsi Reykjavíkurborgar, í
heimabæ sínum skammt frá
Tokyó. Mitsuo hyggst ásamt
öðrum japönskum kaup-
sýslumönnum standa fyrir Is-
landskynningu í tilefni heim-
sóknar forseta íslands til
Tokyó. Ætlunin er að á fyrstu
hæð hússins verði seldur
ýmiskonar varningur frá ís-
landi og á efri hæð verði
aðstaða fyrir gesti.
Mitsuo Sato skoðaði
ásamt fleirum japönskum
kaupsýslumönnum Bláa lón-
ið í síðustu viku, og hefur
hann óskað eftir því að þeir
Hermann og Guðmundur
komi til Japans og setji upp
álíka sýningu á íslandskynn-
ingunni og þeir settu upp í
Stringfellow klúbbnum í
New York.
Vegna þessa hefur Jón
Baldvin Hannibalsson, utan-
ríkisráðherra skipað Her-
mann Ragnarsson sem full-
trúa íslenska ríkisins í undir-
búningsnefnd vegna Islands-
kynningarinnar í Japan.
Gerðaskóli:
Viðbyggingin í
notkun á næsta ári
Framkvæmdir við 1.
áfanga viðbygging-
ar Gerðaskóla hafa
gengið vel. Ekki stend-
ur til að taka neitt af
bygglngunni í notkun á
nýju skólaári, heldur
verður byggingin gerð
fokheld og frágengin að
utanverðu.
í þessum áfanga verða
þrjár almennar kennslu-
stofur auk kennslustofu
fyrir heimilisfræði. Þetta er
þó aðeins þriðjungur af því
sem koma skal. Þegar
byggingin kemst í sína
endanlegu mynd, verður
hún alls 12000 fermetrar.
Samkvæmt upplýsing-
um frá Eiríki Hermanns-
syni, skólastjóra, annar nú-
verandi húsnæði aðeins
53% af áætlaðri húsnæð-
isþörf skólans. Því var orð-
ið mjög brýnt að byggja
við hann, en allar kennslu-
stofur hafa verið tvísetnar,
auk þess sem kennt hefur
verið í tveimur kennslu-
stofum í sundlaugarhús-
inu.
Aætlað er að taka bygg-
inguna í notkun á næsta
ári.
• Frá sýningu Bláa lónsins, sem haldin var í New York
á dögunum. Ljósm.: ELG
Tré-x gerir stórsamning
Trésmiðja Þorvaldar
Ólafssonar í Keflavík
hefur gert stórsamning
við franskt fyrirtæki að
nafni Isoroy Croup,
vegna framleiðslu á spón-
parketi. Frá þessu var
greint í Morgunblaðinu
fyrir helgi.
Franska fyrirtækið hefur á
sinni könnu öflugt markaðs-
kerfi víða um Evrópu og
mun annast sölu á Tré-x
spónaparketi í þeim löndum
sem þeir selja til. Spónapark-
etið hefur fengið nýtt erlent
vöruheiti, en á erlendum
markaði mun það heita
Norvik.
JC-Suðurnes:
Almálið
tekið fyrir
JC-Suðurnes stendur
fyrir hádegisverðar-
fundi á Glóðinni á morg-
un, fimmtudag. Félags-
skapurinn hefur nokkrum
sinnum áður staðið fyrir
slíkum fundum þar sem
ákveðin málefni líðandi
stundar eru tekin fyrir, t.d.
kvótamálin, verktakan á
Keflavíkurflugvelli og fl. Á
morgun verður hins veg-
ar álversmálið tekið fyrir
og frummælendur verða
þeir Sigurður P. Sig-
mundsson, Akureyri, og
Oddur Einarsson og Karl
Steinar Guðnason. Hefst
fundurinn kl. 12.
Torfærukeppni
í rígningu
jörgunarsveitin
Stakkur stóð fyrir
sinni árlegu torfæru-
keppni um síðustu
helgi. Fór keppnin fram
í leiðindaveðri, en engu
að síður létu áhorfend-
ur sig ekki vanta til að
fylgjast með tryllitækj-
um þeysa upp erfiðar
brekkur. Keppnin fór
að þessu sinni fram í
landi Hrauns í Grinda-
vík, en þetta hefur verið
ein af aðalfjáröflunar-
leiðum björgunarsveit-
arinnar.
Sigurvegari varð Árni
Kópsson á Heimasæt-
unni.