Bæjarblaðið - 29.08.1990, Blaðsíða 12
U BÆJARBLAÐIÐ — Frjálst og óháð
íþróttir:
Körfuknattíeiks-
skóli UMFN
Knattspyrna / 2. deild:
Sex gul spjöid og tvö raud
— í fjörugum leik IBK gegn UMFG
Sundkappinn Magnús
Már Ólafsson úr Þór
á Þorlákshöfn hefur haft
félagasklpti en í gær var
gengið frá inngöngu hans
f sundfélagið Suðurnes.
Magnús Már er 26 ára
gamall.
Sundfélagið Suðumes
hefur ráðið V-þýskan þjálfara
til starfa og er hann kominn
hingað til lands. Gengið
verður frá samningum við
hann nú á naestu dögum.
Unglingaráð körfu-
knattleiksdeildar
UMFN mun standa að
körfuknattleiksskóla á
næstunni, sem ætlaður er
drengjum og stúlkum á
aldrinum 7-15 ára.
Kennsla hefst 30. ágúst
og lýkur 2. sept.
Þátttakendum verður skipt
í tvo hópa 7-12 ára og
13-15 ára en leiðbeinendur
verða þeir Friðrik Ragnars-
son, Júlíus Valgeirsson og
Friðrik Rúnarsson, auk þess
sem hinn nýi leikmaður
Njarðvíkinga, Robinsson
kemur í heimsókn, en hann
mun leika með meistara-
flokki í vetur, auk þess sem
hann verður þjálfari. Skrán-
mg stendur yfir í kvöld í
Iþróttahúsi Njarðvíkur.
Úr leik IBK og UMFN. Fyrsta mark IBK í höfn.
Ljósm.: ELG
Sundfélagið
fær liðsauka
Keflvíkingar tóku á
móti Grindvíkingum í
15. umferð 2. deildar í
knattspyrnu og fór leikur-
inn fram á föstudags-
kvöldið. Ekki færri en sex
gulum spjöldum og
tveimur rauðum var veif-
að í þessum hörku leik
sem endaði með sigri
Keflvíkinga.
Fátt markvert gerðist fyrstu
20 mínúturnar í leiknum, en
þá fóru Keflvíkingar að sækja
í sig veðrið. Fyrsta markið
kom á 30. mínútu þegar Óli
Þór Magnússon kom bolt-
anum fram hjá Skúla Jóns-
syni og í netið. Aðeins örfá-
um augnablikum síðar
komst Gestur Gylfason í
ágætt færi, en Skúli varði tví-
vegis skot frá honum. Þrem-
ur mínútum síðar var Óli Þór
enn á ferðinni innan vítateigs
Grindvíkinga, en skaut yfir
markið í ákjósanlegu færi.
Staðan í leikhléi var 1-0,
Keflvíkingum í vil.
Keflvíkingar byrjuðu af
krafti í síðari hálfleik og léku
vel. Sama má segja um
Grindvíkinga sem sýndu
góða baráttu og gerðust
aðgangsharðari við mark
andstæðinganna. A 17.
mínútu síðari hálfleiks voru
þeir hins vegar svo óheppnir
að fá á sig vítaspyrnu sem
Marko Tanasic skoraði úr af
miklu öryggi. Nokkrum
mínútum síðar fengu Grind-
víkingar á sig annað áfall er
Hjálmari Hallgrímssyni var
vísað af leikvelli, en þrátt fyrir
mótlætið efldust Grindvík-
ingar og gerðu orrahríð að
marki Keflvíkinga. Markið lá í
loftinu og það kom eftir rúm-
lega 20 mínútur þegar Einar
Daníelsson skoraði stórglæsi-
lega úr hjólhestaspyrnu sem
Ólafur Pétursson markvörður
ÍBK réði ekkert við. Staðan
var því 2-1. Á síðustu 15
mínútunum var eins og allur
vindur væri úr Keflvíkingum,
sem annars sýndu góða bar-
áttu framan af leiknum.
Grindvíkingar sóttu fast, en
þrátt fyrir góðan vilja tókst
þeim ekki að jafna leikinn.
Lokatölur urðu því 2-1.
Eins og áður sagði þurfti
dómari leiksins sex sinnum
að lyfta gula spjaldinu, og því
rauða tvívegis. Rautt spjald
fengu þeir Jóhann Magnús-
son, ÍBK og Hjálmar
Hallgrímsson, Grindavík.
I/íðismenn á leið í 1. deild
Víðismenn eru næsta
öruggir um sæti í 1.
deild á næsta keppnis-
tímabili. Eftir stórsigur á
Fylkl á föstudagskvöld
þarf Víðisliðið aðeins eitt
stig til að komast upp.
Leikur Víðis og Fylkis
endaði 4-1. Mörk Víðis
skoruðu þeir Grétar Einars-
son (2), Klemens Sæ-
mundsson og Steinar Ingi-
mundarson. Staðan í leik-
hléi var 2-0, Víðismönnum
f vil.
Staðan í 2. deild
Vfðir 34
Fylkir 29
UBK 25
Keflavík 23
ÍR 22
Selfoss 21
Tindastóll 18
Grindavík 14
Leiftur 13
KS 13