Bæjarblaðið - 29.08.1990, Qupperneq 13
BÆJARBLAÐIÐ — Frjálst og óháð 13
Bladamenn í
heimsókn
Fimm blaðamenn frá
Norðurlöndum
heimsóttu Suðurnesin á
föstudaginn. Voru þeir
staddir hér á landi í boði
Ferðamálaráðs. Þeir
Vilhjálmur Grímsson, for-
maður Ferðamálasam-
taka Suðurnesja, og Björn
Lárusson, ferðamálafull-
trúi Suðurnesja tóku á
móti blaðamönnunum og
sýndu þeim ýmsa staði á
Suðurnesjum, m.a Bláa
lónið, sem vakti hrifningu
fjölmiðlafólksins. Tveir
blaðamannana voru frá
Danmörku, m.a. frá stór-
blaðinu Politiken, einn
kom frá Svíþjóð, einn frá
Noregi og einn frá Finn-
landi.
Myndin er tekin á Hótel
Kristínu á föstudaginn við
komu blaðamannanna, en
þar þáðu þeir kaffisopa og
spjölluðu við þá Vilhjálm og
Björn. Þess er vonandi að
vænta að Suðurnesin fái veg-
lega umfjöllun í skandinav-
iskum stórblöðum á næst-
unni.
Ný hljóm-
sveit á
Edenborg
Rúnar Júlíusson
mun kynna nýút-
kominn geisladisk á Ed-
enborg um helgina.
Jafnframt mun hann
skemmta ásamt nýrri
hljómsveit sem er skip-
uð valinkunnum hljóð-
færaleikurum. Þórir
Baldursson leikur á
hljómborð, Björn Thor
og Tryggvi Hubner á
gítara og Júlíus Guð-
mundsson á trommur.
Þá mun hin kunni söng-
vari og lagasmiður,
Bjartmar Guðlaugsson
mæta á staðinn bæði
kvöidin og taka lagið
með þeim félögum.
H.S. byggir tækjageymslu
• Hafnar eru framkvæmdir við gerð tækjageymslu
fyrir Hitaveitu Suðurnesja, en byggingin sem mun rísa
á mararbakkanum aftan við skrifstofu Hitaveitunnar,
verður alls 1000 fermetrar. Jarðvegurinn sem þarna er
grafinn upp er nýttur í gerð skrúðgarðs framan við
skrifstofurnar, eins og fram kemur í annari frétt hér í
blaðinu. Ljósm.: ELG
Alversmálið:
Um nýtt áíver
gildi söm u reglur
— og um önnur fyrirtæki í Vatnsleysustrandar-
hreppi, segir í bókun hreppsnefndar
Miklar umræður urðu
um álversmálið á
fundi hreppsnefndar
Vatnsleysustrandar-
hrepps á dögunum. Hef-
ur hreppsnefnd lýst
ánægju sinni með þá
samstöðu sem náðst
hefur með sveitarfélög-
unum á Suðurnesjum í
stóriðjumálum.
A fundinum var eftirfar-
andi bókun samþykkt
samhljóma:
„Hreppsnefnd lýsir yfir
ánægju sinni með þá sam-
stöðu sem náðst hefur með
sveitarfélögunum á Suður-
nesjum í stóriðjumálum.
Einnig lýsir hreppsnefnd
ánægju með hvernig starfs-
hópur um stóriðjumál á Suð-
urnesjum hefur unnið að því
markmiði sem sett var í upp-
hafi, þ.e. að vinna að því að
næsta álver verði staðsett á
Suðurnesjum.
Hreppsnefnd telur að ef ál-
ver verður staðsett innan
Vatnsleysustrandarhrepps þá
gildi um það sömu reglur og
um önnur fyrirtæki í hreppn-
um, þ.e. að öll lögbundin
gjöld greiðist í sveitarsjóð
Vatnsleysustrandarhrepps.
Enn er mjög óljóst hvaða
framkvæmdir verða nauð-
synlegar í tengslum við
byggingu álvers og einnig
eru kostnaðartölur
ónákvæmar. Það er því
ómögulegt fyrir hreppsnefnd
að taka endanlega ákvörðun
um með hvaða hætti yrði
staðið að slíkum fram-
kvæmdum, en meginhlut-
verk hreppsnefndar á hverj-
um tíma hlýtur að vera það
að gæta ýtrustu hagsmuna
hreppsins hverju sinni“.
ATVINNA
Vantar smiði og verkamenn nú þegar
til staría. Umsóknareyðublöð liggja
frammi á skrifstofunni.
Iðavöllum 13a