Bæjarblaðið - 29.08.1990, Blaðsíða 16
• STAPAPRENT HF.
— við prentum fyrir þig
•ER TRAUST OG ÁVALLT LAUST
Voqar:
10,5
milljónir
í vanskil
*
Ahrcppsnefndar-
fundi í Vogum á
dögunum, var lagður
fram listi yfir vanskil
hreppsins. Hijóða þau
upp á tæpar 9 milljónir
auk þess sem 1600
þúsund eru í vanskilum
vegna landakaupa-
samninga. Heildarvan-
skil Vatnsleysustrandar-
hrepps nema því rúm-
um 10,5 milljónum og
kemur þessi staða veru-
lega á óvart, af því er
kemur fram í fundar-
gerð hreppsnefndar.
Slapp naumlega
úr eldsvoda
Vatnsholtið:
40 umsóknir bárust
Mikill eldur kom upp í
Dráttarbraut Kefla-
víkur sl. sunnudag og
brann austurhluti hússins
til kaldra kola. Slökkviliðs-
mönnum tókst að hindra
útbreiðslu eldsins í aðal-
byggingu hússins.
Rúmlega tvítugur maður
hefur játað á sig að hafa
kveikt í húsinu, en minnstu
munaði að hann yrði eld-
inum að bráð. Tókst honum
að sleppa við illan leik út um
lítinn glugga er húsið var
orðið alelda. Maðurinn var
fluttur á sjúkrahús en hann
hafði fengið reykeitrun.
Þetta er í þriðja sinn með
stuttu millibili sem slökkvilið-
ið er kallað út vegna íkveikju í
Dráttarbrautinni.
Að sögn Sveins
Núma Vilhjálms-
sonar, byggingarfull-
trúa Keflavíkurbæjar,
bárust um 40 umsóknir
vegna auglýstrar lóða-
úthlutunar í Vatnsholt-
inu. Um er að ræða 5
lóðir undir raðhús eða
einbýlishús og 4 lóðir
undir fjölbýlishús.
Samkvæmt upplýsing-
um frá Sveini Núma
standa yfir framkvæmdir
við götuna og á verktaki að
skila því verki af sér núna í
september. Þar með verða
lóðirnar orðnar byggingar-
hæfar.
Lóðaúthlutun var
frestað á síðasta bygging-
arnefndarfundi sem hald-
inn var í vikunni sem leið,
vegna þess að bæjarráð
átti eftir að fjalla um ýmsa
þætti málsins. Væntanlega
verður úthlutað á næsta
fundi byggingarnefndar.
BÆJA RBLAÐIÐ
— næst þegar þú
auglýsir