Heimilisritið - 01.02.1945, Qupperneq 47
Bretar og Frakkar hafa ekk-
ert aðhafst á vesturvígstöðvun-
um til þess að létta ofurþunga
áhlaupsins á Pólland. Það fer að
líta út fyrir, að Hitler muni vera
nýr Napoleon, sem æðir yfir
Evrópu og sigri hana.
Berlín, 11. sept. 1939
Yfirherstjómin skýrir frá þvi,
að brátt sé lokið stórorustu í
Póllandi, og telur, að þar verði
gereytt pólska hemum.
I herstjórnartilkynningunni í
dag er í fyrsta skipti sagt frá
fallbyssuskothríð á vesturvíg-
stöðvunum.
Eg heyrði nokkuð möglað yfir
ófriðnum, þegar ég var á leið-
inni um jarðbrautargöngin út
að útvarpsstöðinni. Einkum virt-
ust konumar áhyggjufullar. En
þegar ég fór heimleiðis aftur,
kom fjöldi fólks í lestina við
Óperuhöllina, flest konur. Það
hafði verið að skemmta sér þar
í fullkominni gleymsku um það,
að styrjöld geisar og þýzkar
vítisvélar spýja eldi og eimyrju
yfir konur og böm í Varsjá.
Berlín, 14. sept. 1939
Við erum allir agndofa yfir
athafnaleysi Frakka og Breta.
Það er ljóst af útvarpi þeirra
Eds og Toms frá London og
París að Bandamenn ýkja sög-
urnar um aðgerðir sínar á vest-
urvígstöðvunum. Þjóðverjar stað-
hæfa, að hingað til hafi aðeins
verið þar smáskærur og benda
á, að Frakkar noti jafnvel ekkx
flugvélar í áhlaupum sínum.
Stofustúlkan kom inn í kvöld
til þess að tala um skelfingar
ófriðarins.,
„Af hverju eru Frakkar að
herja á okkur?“, spurði hún.
„Hvers vegna herjið þið á
Pólverja?“ spurði ég.
„Ha?“ svaraði hún, og andlitið
varð tómt.
„En Frakkar em þó mannlegar
vemr“, hélt hún áfram.
„Hugsanlegt er, að Pólverjar
séu líka mannlegar verur“,
sagði ég.
Berlin, 15. sept. 1939
Eg frétti í dag eftir góðum
heimildum að Rússar mxmi líka
ráðast á Pólverja.
Hvaða áhrif hefur hafnbann
Bandamanna á Þjóðverja? Það
sviptir Þjóðverja í bili helmingi
venjulegs innflutnings. Helstu
innflutningsvörur, sem Þjóð-
verjar missa, eru baðmull,
tin, nikkel, olía og gúm.
Rússar geta hjálpað þeim uin
dálítið af baðmull, en síðast lið-
ið ár fluttu þeir út af henni sem
svaraði 2,5% af ársþörfum
Þjóðverja. Hins vegar geta
Rússar líklega birgt þá eftir
þörfum að mangan og timbri og
veitt þeim næga viðbót við rúm-
ensku olíuna til hernaðarþarfa.
En jámið ? Síðastliðið ár fengu
Þjóðverjar um 45% af xámi
sínu frá Frakklandi, Marokko
og öðmm stöðum, sem þeir ná
HEIMILISRITIÐ
45