Bæjarblaðið - 06.03.1991, Side 2
2 BÆJARBLAÐIÐ - Frjálst og óháð
Tjaldstœði ofan Holtaskóla 7
Ferðamálanefnd Keflavíkur
hefur augastað á svæðinu
fyrir ofan Holtaskóla og
íþróttahúsið í Keflavík undir
tjaldstæði. Hefur nefndin
skoðað þennan möguleikaog
rætt við heilbrigðisfúlltrúa
og bæjarverkfræðing í þessu
sambandi. Verði af þessu
hefur nefndin hug á að s væði
þetta verði tilbúið í maí
næstkomandi.
Feiðamálanefnd telur helstu
kostina vera þá að staður
þessi er miðsvæðis og stutt í
félagslega þjónustu, t.a.m. í
íþróttahús, Sundmiðstöð og
hugsanlegt svefnpláss í
Holtaskóla og aðra þjónustu
sem til boða stendur. Einnig
sé svæðið gróið afmarkað
og stækkanlegt, auk þess að
bflastæði, göngustígar,
lýsing, aðstaðafyrir hjólhýsi
og tjaldvagna sé til staðar.
Nefndin telur umrætt svæði
einnig skjólgott og snyrtilegt
og að kostnaður verði mun
lægri heldur en sá kostnaður
sem yrði við uppbyggingu
Verðurþetta svœði iðandi afferðamönnum íframtíðinni ? Ljósm.:ELG.
frá grunni á nýju tjaldstæði. við bæjarverkfræðing og bæjarstjórn tillögu Iðavelli veiði lokað þegar
Nefndin hyggst láta teikna garðyrkjuverkstjóra Ferðamálanefndar, leggur þaðnýjakemurtilsögunnar.
upp þetta svæði í samráði Keflavíkur. Samþykki hún til að tjaldstæðinu við
Bœjarlýti I
Þetta hús við Hafnargötuna
hefur staðið býsna lengi í
þessu ástandi, sem myndin
sýnir. Það lengi að hætt er
við að bæjarbúar séu hættir
að taka eftir því hversu mikið
útlitslýti þetta er við annars
vinalega verslunargötuna.
Eitt dæmi um áhugaleysi
húseigandans er skilti
Pítubæjar utan á húsinu, en
skyndibitastaðurþessi hætti
starfsemi fyrir nokkrum
árum síðan. Margsinnis
hefur verið fjallað um hús
þetta á fundum
byggingamefndar, en þrátt
fyrir það hefur ekkert verið
gert.
Ákvæði í lögum og
reglugerðum um skipulags-
og byggingarmál segirm.a.:
“Ef byggingamefnd telur, að
útlit húss sé mjög ósnyrtilegt
eða óviðunandi áannan hátt,
eða hætta, óþrifnaður eða
óþægindi stafi af húsinu eða
að húsnæði sé heilsuspiUandi
og/eða óhæft til íbúðar að
mati heilbrigðisnefndar, og
eigandi sinnir ekki áskorun
nefndarinnar um úrbætur,
getur hún látið framkvæma
á hans kostnað þær
endurbætur, er hún telur
nauðsynlegar”.
Ennfremur segir í
reglugerðinni:
“Hafi byggingarfram-
kvæmdir stöðvast í tvö ár
hið skemmsta, getur
sveitarstjóm, að fengnum
tillögum byggingamefndar,
með sex mánaðar fyrirvara,
lagt dagsektir á byggingar-
leyfishafa, sbr. 9.1.2., eða
tekið ófullgerðarbyggingar-
framkvæmdir eignarnámi
skv. lögum um framkvæmd
eignamáms”.
Þá segir jafnframt að “ef
aðili sinnirekki fýrirmælum
byggingarfulltrúa eða
byggi ngamefndarinnan þess
frests sem sveitarstjóm setur,
getur hún ákveðið dagsektir
þar til úr verður bætt”.
■ Útgefandi: Stapaprent hf. ■ Afgreiðsla, ritstjóm og auglýsingar: Hafnargötu 90 2. hæð, sími 15747, Brekkustígur 39, Njarðvík
(Stapaprent), sími 14388 ■ Ritstjóri: Ellert Grétarsson, sími 15747, heimasími 13680, telefax: 15266 ■ Upplag: 5000 eintök sem
dreift er um öll Suðumes ■ Setning, umbrot og prentun: Stapaprent hf., Brekkustíg 39, Njarðvík, sími 14388, telefax 15266.