Bæjarblaðið - 06.03.1991, Blaðsíða 8
8 BÆJARBLAÐIÐ - Frjálst og óháð
okksýnina
Nm emendurúrFjöl-
brautaskóla
Suðurnesja
frumsýndu á
fostudagskvöldið
rokksýninguna“f
tónastíptunum”í
Stapa. Undir-
ritaður hefur
starfað í meira en
10 ár í skemmt-
anabransanum og séð
fjölmargar sýningar sem
settar hafa verið upp. í
veitingahúsum, og gefur
þessi sýning FS-inga þeim
sýningum ekkert eftir.
Uppsetningu önnuðust
krakkamir á eigin spýtur,
bæði hvað varðarljósbúnað,
sviðsmynd, tónlistar-
ílut ning, dansa, söng og leik.
Er Ijóst að gífurleg vinna
liggur að baki þessari
sýningu. Um 40 nemendur
taka þátt í henni á einn eða
annan hátt, 10 dansarar, 8
manna hljóm s veit, 6 leikarar,
auk söngvara, ljósamanna,
sviðsmanna, búninga-
hönnuða, hárgreiðslu og
föðrunarfólks.
Á sýningunni er flutt
kröftugt og fjörugt rokk frá
upphafi til loka. Byijað er á
gömlu gullaldarárum
rokksins, þegarPresley.Litle
Richard og allir hinir voru
hvað vinsælastir. Þáeru flutt
nokkur lög úr hinni
geysivinsælu kvikmynd
“Grease”, en lög úr henni
náðu nokkrum vinsældum á
nýjan leik fyrir um einu ári
síðan. Þá eru einnig fluttir
gullmolar eins og “Time
Warp" úr Rocky Horror
Picture Show, Blues
Brothers koma við sögu,
MeatLoaf og fl. og fl.
Sýningin er hæfilega löng,
eðaum klukkutími. Hérerá
ferðinni hin besta skemmtun,
sem alveg eins mætti fara
með víðar.
Hér á opnunni eru nokkrar
svipmy ndir sem teknar voru
við frumsýninguna.
-ELG