Bæjarblaðið - 06.03.1991, Qupperneq 10
10 BÆJARBLAÐIÐ - Frjálst og óháð
Hafnarhús fyrír haustið
1500 fermetrar byggðir í 1. áfanga
í Grindavík eru uppi
hugmyndir um að reisa
hafnarhús, þar semyrði
gólfaðstaða fyrir
Fiskmarkað Suður-
nesja og aðstaða fyrir
ýmsa aðra starfsemi
hafnarinnar. Á lóðinni
er unnt að byggja allt
að 3000 fermetra hús
að grunnfleti, en í fyrsta
áfanga er gert ráð fyrir
1500 fermetra húsi.
Um miðjan febrúar
var haldinn fundur á
Sjómannastofunni Vör
með áhugaaðilum og
mættu á milli 40-50
manns á fundinn. Þar
voru lagðar fram
frumteikningar af
húsinu. Lausleg áætlun
gerir ráð fyrir 50 - 60
milljónum í
byggingarkostnað.
Reiknað er með 20
milljónumíhlutafé, en
á fundinum var
samþykkt tillaga þess
efnis að unnið verði að
stofnun hlutafélags
með það að markmiði
að byggja og reka
húsnæði á Miðgarði,
sem á að þjóna útgerð
og annarri starfsemi
sem tengist höfninni.
Kosinn var fimm
manna nefnd á
fundinum og er henni
ætlað að vinna að
framhaldi málsins.
Stefnt er að stofnfundi
15. mars n.k. eða á
föstudaginn.
Sundfélagið:
Fœr þriöju
brautina
Að ósk Sundfélagsins Suðumes hefur verið ákvæðið að
bæta við einni brautarlínu í viðbót við þær tvær sem fyrir
em í Sundmiðstöðinni. Með þessu mun því aðeins
helmingur laugarinnar vera fyrir almenning seinni hluta
dags þegar æfingar standa yfir.
Fjárhagsáœtl-
un samþykkt
Fjárhagsáætlun Kefla-
víkurbæjar hefur verið lögð
fram í bæjarstjórn og
samþykkt samhljóða.
Helstu niðurstöður hennar
em þessar:
Sameiginlegar tekjur em
samtals 717,878,OOOog þar
af eru útsvarstekjur
503,820,000. Aðstöðu-
gjöld eru 62,000,000,
fasteignagjöld
78,176,000, aðrar tekjur
73,882,000. Rekstargjöld
em samtals 702,047,500,
rekstrar-tekjur 193, 979,
000. Til framkvæmda eða
fjárfestinga em áætlaðar
212,809,500 og þar af
óráðstafað 10,810,500.
Námskeiö fyrir inn-
flytjendur
Fjölbrautaskóli Suður-
nesja hefur ákveðið að
bjóða innflytjendum upp
á námskeið í íslensku,
íslandssögu og samfélags-
fræði. Formaður skóla-
nefndar vakti fyrst máls á
þessu í bytjum ársins, og
var þá strax farið að vinna
í málinu. Á fundi skóla-
nefndaríjanúarvarjanframt
samþykkt að beina því til
sveitarfélaganna að bregðast
hið fyrsta við vanda þessa
fólks og móta stefnu í málinu.
Jafnframt var ákveðið að
bjóða einnig upp á
íslenskukennslu fyrir
innflytjendur í námsflokk-
unum á þessari önn.
Nokkru síðar var
skólanefnd fenginn listi
yfir 25 manns sem áhuga
hafa á slíku námi. Mennta-
málaráðuneytið hefur
samþykkt að styrkja þetta
framtak og er fyrsta
námskeiðið nú þegar
hafið.
Á þessu svœði vill Umhverfisnefnd
Njarðvíkur setja á laggimar “gróðurbanka”.
Umhverfisnefnd
með tillögu um
gróðurbanka
Umhverfisnefnd Njarð-
víkurbæjarhefur viðrað þær
hugmyndir að sérstakur
“gróðurbanki” verði setturá
laggimará svæði því sem nú
erundirrafmagnsspennistöð
Hitaveitumnar við Bolafót í
Njarðvík, Jtegar HS hefúr
ekki lengur þörf fy rir að nota
svæðið undirdreifistöð.
Gróðurbanki þessi er
hugsaður sem svæði sem
notað yrði til að planta
ungum tijágræðlingum og
láta þá vaxa í tvö til þijú ár
áður en þeim yrði
dreifplantað víðsvegar um
bæinn og í nágrenni hans.
Yrði þá ráðinn garð-
yrkjumaður sem hefði
aðstöðu á þessu svæði og
sæi um alla garðyrkju fyrir
bæinn.jafnvelítengslum við
vinnuskólann.
Em þetta ekki ósvipað þeim
hugmyndum sem
bæjarstjóm Njarðvíkurhefúr
viðrað um gróðrastöð á
Fitjum. Vildu bæjaryfirvöld
samvinnu bæjaryfirvalda í
Keflavík í því sambandi, en
þar varekki áhugi fyrirhendi.