Bæjarblaðið - 06.03.1991, Page 11
BÆJARBLAÐIÐ - Frjálst og óháð 11
Fjölsótt námskeið
hjá VSFK
Um þessar mundir stendur
yfir svokallað kjarna-
námskeið hjá Verkalýðs- og
sjómannafélagi Keflavíkur
og nágrennis. Félagsmenn
hafa sýnt þessu mikinn áhuga
og eru um 150 manns á
námkeiði nu. Er þetta í annað
sinn sem kjamanámskeið er
haldið á vegum VSFK og
heyrir það því til nýbreytni í
félagsstarfinu. Auk þess
hefur félagið efnt til annarra
námskeiða, t.d. vinnu-
vélanámskeið, námskeið í
skyndihjálp og fleiraog hafa
þau jafnan verið vel sótt af
félagsmönnum. Umsjón
með kjamanámkeiðinu hefur
Guðrún Ólafsdóttir hjá
Verkalýðsfélaginu. Blaða-
maðurhitti hanaað máli fyrir
helgi og innti hana nánari
upplýsinga um námkeiðið.
Guðrún segir að
kjamanámskeiðið skiptist í
nokkra þætti. Um erað ræða
ákveðniþjálfun, mannleg
samskipti, vinnurétt og
tryggingar, starfsstellingar,
meðferð efna, sýkingar-
vamir og ræstingar. Undir
liðnum “mannleg samskipti”
ert.æm. fjallaðum umgengni
fólks hvert við annað á
vinnustaðnum, hvemig taka
beri á árekstarvandamálum
og fleira í þeim dúr. í
ákveðniþjálfúninni er t.d.
fjallað um sjálfsvirðinguna
og má segja aðþamaséunnið
á mannræktamótunum.
Á árinu 1989 fékk VSFK
Menningar- og fræðslu-
samband alþýðunnar til að
skipuleggja þetta námskeið
með hliðsjón af vilja og
hugmyndum VSFK um það
hvað félagið vildi kenna á
slíkum námskeiðum, t.d.
varðandi mannleg samskipti.
‘Til viðbótar fengum við sr.
Ólaf Odd tíl að fjalla um
sorg og sorgarviðbrögð á
námskeiðinu, því við vomm
þá með þannig hóp, þ.e.a.s.
fólk af sjúkrahúsinu og
elliheimilum, sem þarf að
umgangast deyjandi fólk og
aðstandendur þeirra. Þess
vegna fannst okkur þarft að
taka þennan þátt inn í og við
vorum fyrsta félagið til að
gera það”, segir Guðrún.
Þvx má svo bæta við að
VSFK var jafnframt fyrsta
félagið sem bað Menningar
og fræðslusamband alþýðu
um aðstoð við undirbúning
slíks námskeiðs, þannig að
frumkvæðið er komið frá
VSFK.
“Það hefur verið mjög
gaman að vinna við þetta,
ekki síst vegna þess hve fólk
tekur þessu vel.
Þátttakendurnir á
námskeiðunum hafa haft
mjög gaman af þessu”, segir
Guðrún. “Fólk hefúr komið
og sagst aðeins ætlaað prófa.
Við lok námskeiðsins hefúr
sama fólkið sputt hvemær
næsta námskeið verði haldið,
eða hvort það verði ekki
haldið framhaldsnámskeið”.
Guðrún var spurð að því
hvort þessi námskeið væru
eingöngu ætluð
félagsmönnum, og kvað hún
svo vera. Og það sem meira
er; námsgjöld em engin.
“Þetta námskeið sem nú er
nýhafið er40 kennslusnmdir.
Annars erþettamismunandi.
í fy rra þegar við héldum þetta
fyrir starfsfólk mötuneyta,
fóm 68 kennslustundir í það
og 92 stundir fyrir starfsfólk
af sjúkrahúsi og
elliheimilum. Við byggjum
námskeiðin upp og
skipuleggjum þau eftir því
hvaða hópar em á þeim.
Gmnnurinn er sem sagt
mannleg samskipti,
skyndihjálp og
starfsstellingar”, segir
Guðrún aðspurð um efnið.
Guðrún segir að námskeiðin
séu jafnframt settupp á þann
máta að fólk getí sótt þau
ýmist að kvöldi, síðdegis eða
að morgni, allt eftir þ ví h vað
hentar hvetjum og einum. Er
þetta mjög hentugt
fyrirkomulag, ekki síst fyrir
vaktavinnufólk. Mætingar-
skylda er 80 % til að öðlast
útskriftarskírteini og hefur
Verkalýðsfélagnu tekist að
semja við nokkra
vinnuveitendur um
kauphækkun til handa því
fólki sem útskrifast af
námskeiðinu.
Auglýsing frá Fíladelfíu
Hafnargötu 84 keflavík
Sunnudagaskóli kl 14.00 hvern
sunnudag.
Allir krakkar velkomnir.
Vakningarsamkomur sunnudaga
kl. 16.00 söngur og hjóðfærasláttur.
Verið velkominn!
Sam Glad - Kristján Reykdal
Geymið auglýsinguna!
ATVINNA
Óskum eftir að ráða prentara eða
laghentan mann,
ekki yngri en 25 ára.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar um starfið veittar í
Stapaprenti, Brekkustíg 39,
Njarðvík.
STAPAPRENT hf.
LfFEYRISSJÓÐUR
SUÐURNESJA
Lffeyrissjóður Suðurnesja
flytur!
Skrifstofa sjóðsins opnarföstudaginn 8. mars kl. 13.00
að Tjarnargötu 12, 2. hæð, Keflavík
(Gengið inn frá Kirkjuvegi)
Nýtt símanúmer er 16666