Bæjarblaðið - 06.03.1991, Qupperneq 12
Getum bœtt viö fólki
-segir Agnar Breiðfjörð hjá íslenskum gœðafiski hf.
„Ég get ekki neitað því að
við verðum varir við
manneklu. Framboð á
hráefni hefur verið meira
og við getum bætt við
fólki”, sagði Agnar
Breiðfjörð verkstjóri hjá
íslenskum gæðafiski hf í
Njarð vfk þegar blaðið ræddi
við hann á föstudaginn. Hjá
fyrirtækinu starfa í kringum
40 manns.
„Við auglýstum eftir
mannskap í gær, og það hefur
verið talsvert hringt og spuit.
Maður veit ekki hvað af því
skilar sér. Ætli við þurfum
ekki um 5-10 manns til
viðbótar”, sagði Agnar.
Þið hafið ekki þurft að
grípa til þess úræðis að
flytjainn erient vinnuafl ?
„Nei það hefur ekki reynt
á það ennþá”.
12 BÆJARBLAÐIÐ - Frjálst og óháð
Untiið að hrognahreinsum á föstudaginn hjá Miðnesi hf Fyrirtœkið hefur nýtt húsakynni Sjöstjörnunnar í Njarðvtk undir
hrognahreinsunina. Ljósm.: ELG.
Mannekla í
frystihúsum
Nokkur mannekla var í nokkrum frystihúsunum í síðustu
viku, en sum þeirra hafa þurft að grípa til þess að flytja inn
erlent vinnuafl, eins og komið hefur fram í fréttum.
Vetrarvertíðin er nú að komast í fullan gang og hefúrtalsvert
sljákkað á atvinnuleysisskránni af þeim sökum. Blaðið hafði
samband við nokkra veikstjóra frystihúsa í Keflavík og
Njarðvík á föstudaginn og heyrði í þeim hljóðið.
Mikil eftirspurn
“Það er allt að komast í fullan
gang hjá okkur. Það hefur
gengið þokkalega vel að fá
mannskap og í fljótu bragði
sýnist mér við vera komnir
með þann mannskap sem við
þurfum”, sagði Einar
Leifsson hjá Jökulhömrum
hf í Keflavík.
Verður þú var við mikla
eftirspum eftir atvinnu ?
“Já, það er engin spuming.
Það hefur gengið vel að fá
gott fólk og ég er ánægður
með það”.
Þið hafið ekki þurft að flytja
inn pólskt vinnuafl ?
“Nei, ég vil nú fyrst nýta
íslenskt vinnuafl áður en ég
fer að flytja inn útlendinga.
Annars höfum við um
nokkurt skeið verið með
fastan kjama starfsfólks hér”,
sagði Einar.
„Erum vel settir
með mannskap’
- segir Sigurbjörn Pálsson hjá Miðnesi hf.
,J>að cr bara ágætt hljóðið í
okkur”, sagði Sigurbjörn
Pálsson, vcrskstjóri hjá
Miðnesi hf í Sandgerði, þcgar
blaðið hafði samband við
hann. Aðspurður sagði
S iguibjöm að þcir hjá Miðnesi
hefðu nægan mannskap. „Við
höfum alltaf átt því láni að
fagna að vera yfirleitt vel í
sveit settir með fólk".
Þið hafið sem sagt aldrci þurft
að hugsa út í það úrræði að
flytja inn vinnuaflið eins og
sumstaðar hefur þurft að gera
?
“Nei, frekar að við höfum
orðið að neita fólki, svo
ólíklega scm það kann að
hljóma. Það er þá kannski
vegna þess að við höfum haft
nokkuð staðbundna vinnu
flesta daga ársins”.
Um það bil 70 manns starfa í
frystihúsinu, í salthúsinu eru
um 20 starfsmenn, þannig að
hjá fyrirtækinu starfa á milli
90-100 manns, fyrir utan
skipsverja á bátum
fyrirtækisins og
beitingarmenn. Á föstudaginn
þegar rætt var við Sigurbjöm
var hrognahreinsun hafin fyrir
tveimur dögum. Sigurbjöm
sagði hrognin vera orðin
nokkuð góð, en þau hefðu
verið í slappara lagi í fyrsm.
„Við vorum að vonast til að
geta fryst a.m.k. 2-300 tonn
Hvemig hefur afli bátanna
verið ?
„Hann hefur verið alveg
þokkalegur , mjög góður hjá
togumnum og alveg ágætur
hjá h'nubátunum”.
Þannig að það er bara gott í
ykkur hljóðið 7
„Jájá, enda þýðir ekkert
annað”.
Karfa/úrvalsdeild:
Njarðvík
sigraði
Hauka
Njarðvíkingar tóku á móti
Haukum á sunnudaginn og
fóru með siguraf hólmi, 98-
85 eftir að staðan í leikhléi
var 49-47 heimamönnum í
vil. Njarðvíkngar tóku
leikinn endanlega í sínar
hendur um miðjan síðari
hálfleik og lá sigurinn í
loftinu eftir það. Rondey
Robinsson var sem fyrr
atkvæðamikill í leik
Njarðvíkinga og skoraði 32
stig. Friðrikgerði 20, Gunnar
12, Teitur 10, Ástþór 9,
Kristinn 8 og Hreiðar 7.
Öruggt í
Keflavík
ÍBK lék á heimavelli á
sunnudagskvöldið gegn
Þórsurum. Staðan í leikhléi
var 51-39, heimamönnum í
hag. f síðari hálfleik vonr
Kefl víkingar með undirtökin
allan tímann, náðu mest 19
stiga forskoti, en munurinn
varð aldrei meiri en 6 stig.
Lokatölur uiðu 101-90 fýrir
ÍBK.
Siggi Ingimundar var
stigahæstur með 19 stig, þá
kom Tyron með 18 stig,
Hjörtur H með 16, Jón Kr.
15, Falur 13, Albert 9, Júlíus
6 og Egill 5.
12 pól-
verjar í
Brynjófii hf.
Hjá Brynjólfi hf í Njarðvík
fengust þær upplýsingar að
fremur illa hefði gengið að
fá mannskap, og hefúr þurft
að flytjainn 12pólveija. Hjá
fyrirtækinu starfa á milli 60
- 70 manns og að sögn
verkstj óra á staðnum eru þeir
eins og er með þann
mannskap sem þarf.
Loðnuhrognataka hófst í
síðustu viku hjá Brynjólfi
eins og fleirum
fiskvinnslustöðvum á
svæðinu.