Verktækni - 01.02.2012, Blaðsíða 1
Laun sérfræðinga
4
Konur í verkfræði í Ástralíu
og á Íslandi
8
Orkunotkun bygginga
10
Farðu í leitir
7
Heiðursveitingar
12
1 . t b l . 1 8 . á r g . 2 0 1 2
Dagskrá afmælisárs
6
Þann 19. apríl næstkomandi verða 100
ár liðin frá stofnun Verkfræðingafélags
Íslands (VFÍ). Afmælisins verður minnst
með ýmsum hætti eins og sjá má á dagskrá
afmælisársins sem er birt á bls. 6.
Á sjálfan afmælisdaginn verður glæsileg
afmælishátíð í Hörpu og eru allir félags-
menn og velunnarar félagsins velkomnir.
Þar verða veittar viðurkenningar fyrir fram-
úrskarandi árangur við tæknilegar uppfinn-
ingar eða nýsköpunarverkefni sem hafa
reynst þjóðhagslega eða alþjóðleg mikilvæg
og byggja á þekkingu í raunvísindum og
tækni.
Fyrsti íslenski verkfræðingurinn,
Sigurður Thoroddsen, lauk námi frá DTH
í Kaupmannahöfn árið 1892. Tveimur ára-
tugum síðar var Verkfræðingafélag Íslands
stofnað. Að stofnun félagsins stóðu þeir
níu íslensku verkfræðingar sem lokið höfðu
námi, einn húsameistari og þrír erlendir
tæknimenn sem búsettir voru hérlendis.
Verkfræðingum fjölgaði hægt framan af
Verkfræðingafélagið 100 ára
öldinni og voru félagsmenn í VFÍ innan við
eitt hundrað árið 1940. Í dag eru félagmenn
VFÍ rúmlega 2200. Í félaginu eru um 75%
Íslendinga sem lokið hafa prófi í verkfræði.
Störf verkfræðinga ná yfir stöðugt
stærra svið og má segja að nám í verk-
fræði veiti aðgang að nánast hvaða starfs-
vettvangi sem er. Sem fyrr segir verður
stórafmælis VFÍ minnst með ýmsum hætti.
Auk afmælishátíðar í Hörpu verða haldnar
ráðstefnur og fundir sem eru liður í öflugu
starfi til að minnast afmælis VFÍ með verð-
ugum hætti. Rétt er að nefna sérstaklega
afmælisráðstefnuna: Framtíðarnýting
orkuauðlinda á Íslandi sem verður á
Grand Hótel 8. mars.
Islandsmyndir.is – Rafn. Sig