Verktækni - 01.02.2012, Page 7
VERKTÆKNI / 7
Opnaður hefur verið nýr leitarvefur
http://leitir.is sem leitar samtímis
í Gegni sem er samskrá velflestra
bókasafna í landinu, tengdu staf-
rænu íslensku efni ásamt erlendum
áskriftum að stafrænu vísindaefni í
Landsaðgangi.
Katrín Jakobsdóttir ráðherra mennta- og
menningamála opnaði vefinn og kynnti
nafn hans á afmælisráðstefnu Landskerfis
bókasafna hf. 11.11.11. Nafn vefgáttarinnar
er sótt til þess viðburðar sem á sér stað
á haustin í sveitum landsins er bændur
halda til fjalla og smala saman búpeningi
sínum. Þeir fara í leitir. Á vefnum leitir.is
fara menn einnig í leitir og smala saman
upplýsingum. Það er margt sem þar kemur
í leitirnar. Förum öll í leitir!
Aðgengi frá einum stað
Leitarvefurinn opnar á nýjan hátt aðgang
að ómetanlegum menningarverðmætum
sem fólgin eru í söfnum landsins og gera
notendum kleift að afla sér margþættra
upplýsinga á einum stað sér til verulegs
hagræðis. Þessi aukna leitarvirkni gagnast
notendum og þá um leið þjóðinni við
hvers kyns upplýsingaleit sem tengst getur
skólagöngu, sérfræðivinnu, rannsóknum
eða dægradvöl.
Eftirtalin gagnasöfn eru nú aðgengileg
í gegnum leitarvefinn: Bækur.is sem er
stafræn endurgerð gamalla íslenskra bóka,
Elib sem er áskrift bókasafns Norræna
hússins að rafrænum bókum, Gegnir sem
er samskrá íslenskra bókasafna, Hirsla sem
geymir vísinda- og fræðigreinar starfs-
manna Landspítala- háskólasjúkrahúss,
Hvar.is sem er landsaðgangur að erlendum
gagnasöfnum og rafrænum tímaritum,
Myndavefur Ljósmyndasafns Reykjavíkur
sem inniheldur fjölmörg ljósmyndasöfn
í eigu safnsins, Skemman sem er safn
námsritgerða og rannsóknarita háskól-
anna og Timarit.is sem veitir aðgang að
fjölmörgum dagblöðum og tímaritum sem
hafa verið gefin út á Íslandi, Grænlandi og
í Færeyjum. Fleiri gagnasöfn eiga eftir að
bætast við.
Umsjón vefsins
Landskerfi bókasafna hf. er hlutafélag sem
ríkið á ásamt 52 sveitarfélögum og hefur
það hlutverk að reka sameiginlegt bóka-
safnskerfi fyrir bókasöfn á vegum þessara
aðila. Fyrirtækið var stofnað 14. nóvember
árið 2001. Félagið rekur nú bókasafns-
kerfið Gegni (gegnir.is) fyrir rúmlega 300
bókasöfn og eru þar á meðal öll stærstu
söfn landsins, svo sem Landsbókasafnið,
háskólabókasöfnin og Borgarbókasafn
Reykjavíkur. Umsjón og rekstur leitir.is er í
höndum Landskerfis bókasafna hf.
Útlit vefsins leitir.is var unnið af
Hrafnhildi Jónsdóttur og Tinnu Brá
Baldvinsdóttur hjá Hrím Hönnunarhúsi.
Farðu í leitir.... nýr vefur leitir.is