Verktækni - 01.02.2012, Blaðsíða 12
12 / VERKTÆKNI
Mynd 2. Dæmi um þrívíða prentrásateikningu í Altium.
Mynd 1. Dæmi um rásateikningu í Altium.
Ekkert af þeim forritum sem ég hef
prófað er með nægilega góð bókasöfn
(library) af íhlutum. Altium mætti líka bæta
sig hér. Iðulega þarf að búa til nýjan íhlut í
hverri hönnun. Hér hefði maður haldið að
það væri hagur íhlutaframleiðenda að hafa
svona upplýsingar á heimasíðum sínum,
en það yfirleitt ekki tilfellið. Mér hefur
reyndar orðið nokkuð ágengt í að finna
bókasöfn fyrir Altium, en það er sennilega
vegna þess að það getur tekið inn bókasöfn
frá mörgum hinna forritanna. Hins vegar
er Altium með töfra (wizard) sem hjálpar
manni að búa til íhlutinn og vegur það
nokkuð upp skortinn á tilbúnum íhlutum.
Þegar hönnun er lokið er einfalt er að
búa til helstu skjöl, t.d. teikningar á pdf
formi.
Það má lengi telja upp alls konar smá-
atriði varðandi Altium og örugglega margt
einnig hægt í OrCAD og öðrum forritum.
Fyrir áhugasama er berst að skoða eitthvað
af öllu því því efni sem er aðgengilegt á
Netinu og bera saman við sitt kerfi. Altium
er í það minnsta verðugur valkostur við
OrCAD.
Námsmannaleyfi fyrir Altium
Lengi hefur verkfræðinemum ekki
staðið til boða annað en að nýta sér
ókeypis útgáfur af prentrásarforritum. En
nú er Háskólinn í Reykjavík kominn með
50 námsmannaleyfi fyrir Altium. Það er
ánægjulegt að nemar geti nú notað í skól-
anum verkfæri fagmanna. Þeir fara þannig
út í atvinnulífið með með þekkingu og
færni sem hentar ágætlega því Altium er
þegar í notkun í nokkrum íslenskum fyrir-
tækjum.
Höfundur: Baldur Þorgilsson, aðjúnkt, Tækni- og
verkfræðideild, Háskólanum í Reykjavík
Tenglar
http://www.altium.com
http://www.cadence.com
http://www.cadsoftusa.com
http://www.freepcb.com
http://www.expresspcb.com
http://www.gpleda.org