Verktækni - 01.03.2012, Page 9
VERKTÆKNI / 9
Þeir einstaklingar sem voru heiðraðir fengu viðurkenningarskjal. Fyrirtækin sem þeir tengjast fengu til
vörslu glerlistaverk eftir Sigrúnu Einarsdóttur í Bergvík. – Slíka gripi hlutu einnig þeir fimm einstaklingar
sem voru heiðraðir fyrir sérstakt frumkvæði og áhrif.
Viðurkenning fyrir að hafa sýnt sérstakt frumkvæði og haft veruleg áhrif.
Forsetinn flutti ávarp og þakkaði verkfræðingum
mikilvægt framlag þeirra.
Vilhjálmur Lúðvíksson, formaður viðurkenningar-
nefndar.
prótein og fyrir að stofna með félögum
sínum líftæknifyrirtækið Orf Líftækni hf.
um viðskiptahugmyndirnar.
Stjörnu-Oddi hf.
Sigmar Guðbjörnsson,
rafmagnsverkfræð ingur. Heiðraður fyrir
þróun á sérlega frumlegum smátækjum
til að safna mæligögnum um breytileg
umhverfisskilyrði á farleiðum fiska og
fugla, þannig kortleggja gönguleiðir og
atferli, stofna fyrirtækið Stjörnu-Odda
ehf. um viðskiptahugmyndir og leiða það
farsællega.
Stiki ehf.
Svana Helena Björnsdóttir rafmagns
verkfræðingur. Heiðruð fyrir að hafa
fyrst verkfræðimenntaðra kvenna stofnað
og stjórnað farsællega fyrirtæki sem hefur
verið leiðandi í þróun upplýsingatækni-
öryggis, haslað sér völl á erlendum mörk-
uðum, staðið í fararbroddi í félagsmálum
atvinnulífsins, skapað sterka fyrirmynd og
rutt brautina fyrir aukna þátttöku kvenna í
verkfræði og raunvísindum.
Ríkharður Kristjánsson, byggingarverk
fræðingur. Heiðraður fyrir forystu um
samræmt átak til að losna við alkalívirkni
og aðrar skemmdir úr íslenskri steinsteypu
og sameina tæknilega og fagurfræðilega
snjallar lausnir við hönnun brúa, menn-
ingarbygginga og sýninga til landkynninga
erlendis.
Sigurjón Arason, efnaverkfræðingur.
Heiðraður fyrir frumkvæði og einstaka
þrautseigju við innleiðingu fjölda nýjunga
sem skipt hafa sköpum fyrir gæði og arð-
bæra nýtingu hráefnis úr sjávarafla og fyrir
miðlun þekkingar innanlands og erlendis.
Albert L. Albertsson, vélaverkfræð
ingur. Heiðraður fyrir tæknilega forystu
um þróun heildstæðrar aðferðar við virkjun
orku úr söltum háhitasvæðum og fyrir
ósérhlífni við að leita leiða og aðstoða aðra
við að nýta grunnvatnið, jarðhitavökvann
og varmaorkuna á fjölbreyttan hátt til
iðnaðarframleiðslu, ræktunar, heilsulinda,
rannsókna og þróunar á jarðvarmatækni,
kennslu og þjálfunar og upplifunar fyrir
ferðamenn.
Ingvar Birgir Friðleifsson, jarðfræð
ingur. Heiðraður fyrir kynningu um allan
heim á jarðhita sem gjöfulli og hagkvæmri
orkulind, forystu um stofnun og skipulag á
starfsemi Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu
þjóðanna á Íslandi og þjálfun um 500 sér-
fræðinga frá 50 þróunarlöndum í virkjun og
nýtingu jarðhita.
Sigmundur Guðbjarnason, lífefnafræð
ingur. Heiðraður fyrir forystu um upp-
byggingu náms í raunvísindum við Háskóla
Íslands, eflingu rannsókna við skólann
og forystuhlutverk við mótun stuðnings-
kerfis fyrir vísinda- og tæknrannsóknir og
nýsköpun á Íslandi.
Þeir sem plægðu akurinn
Einstaklingar sem hafa sýnt sérstakt
frumkvæði og haft veruleg áhrif.