Fréttatíminn


Fréttatíminn - 16.08.2013, Blaðsíða 18

Fréttatíminn - 16.08.2013, Blaðsíða 18
Það skemmti- lega við leik- arastarfið er að fá að setja sig í fótspor allra þessara persóna. Og þegar maður verður betri í því og fær meiri reynslu þá gefur það manni bara meira og meira. É g er frekar feiminn að eðlis- fari eins og margir leikarar eru. Ég held að það sé líka ákveðin ástæða fyrir því að menn sækja í svona starf. Þá er maður ekki maður sjálfur og þó maður sé það þá er maður það ekki. Það skemmtilega við leikarastarfið er að fá að setja sig í fótspor allra þess- ara persóna. Og þegar maður verður betri í því og fær meiri reynslu þá gefur það manni bara meira og meira,“segir Ólafur Darri Ólafsson leikari. Flestir Íslendingar þekkja Ólaf Darra Ólafsson, leikarann geðþekka, og það er ekki annað hægt en að þykja vænt um hann. Þeir gera það líka í Holly- wood, því að hann fær hvert hlutverk á fætur öðru. Ólafur Darri hefur fengið lof fyrir frábæran leik í íslenskum og erlendum kvikmyndum, fyrir leik sinn í leikhúsi hér heima og erlendis, hann hefur framleitt bíómyndir og verið boðið fjölda hlutverka í Hollywood bæði í sjónvarpsþáttum og bíómyndum. „Ég er nýverið búinn að fá tilboð um að leika í prufuþátt og ég get eðli málsins samkvæmt ekki sagt hver hann er. En ég get sagt að þátturinn er gerður fyrir sjónvarpsstöðina AMC sem framleiðir Mad Men, Breaking Bad, Walking dead og The Killing sem dæmi. Ef menn ákveða að prufu þátturinn eigi að verða að þáttaröð þá fær maður frekari vinnu sem væri gaman“ segir Ólafur Darri. Ólafur Darri mun líka leika Hamlet í Borgarleikhúsinu um næstu áramót og leika aðalhlutverkið í sjónvarpsþátta- röðinni Ófærð sem Baltasar Kormákur, Sigurjón Kjartanson og Magnús Viðar eru að framleiða. Hún fer líklega í tökur eftir áramót. Ólafur Darri fæddist í Bandaríkj- unum og bjó þar sín fyrstu ár ásamt foreldrum sínum og systkinum. Eftir það flutti hann í Breiðholtið þar sem hann bjó til 25 ára aldurs. „Ég fékk frekar frjálst uppeldi og á þeim tíma voru menn frekar líbó. Það var ofboðs- lega gott að alast upp í Breiðholtinu og þar var samheldinn hópur krakka sem maður heldur smá sambandi við. Það voru góðir tímar og gaman að vera til,“ segir Ólafur Darri. Ólafur segir foreldra sína hafa alltaf verið mikið lestrarfólk og hann eðlilega hafi hann smitast af því. „Ég man þegar Ætlaði aldrei að verða leikari Alltaf jafn undrandi þegar leikstjórar taka séns á manni. Ólafur Darri Ólafsson segist vera frekar feiminn að eðlisfari en það sé líka ákveðin ástæða fyrir því að menn sækja í leikarastarfið. Hann segir tilfinninguna þá sömu núna þegar honum er boðið hlutverk í Hollywood og þegar honum var boðið fyrsta hlutverkið í Þjóðleikhúsinu fyrir um 15 árum síðan. Hann segist alltaf reyna að standa sig vel í þeim hlutverkum sem hann fær og lætur sig dreyma um að hafa unnið sig upp. ég fór loksins að lesa bækur sjálfur að þá fór ég í Bókabílinn og vildi taka 20 bækur en ég mátti bara taka 10 án þess að fá sérstakt leyfi. Ég las mjög mikið en þá voru aðrir tímar. Ég vorkenni stundum unglingum í dag því að það er svo mikið framboð af öllu, tölvuleikjum, bíómyndum, sjón- varpsefni og allt innan seilingar,“ segir Ólafur Darri. „Pabbi minn er læknir og mamma mín er hjúkrunarfræðingur og það er ekki mikið af listamönnum í minni fjölskyldu en þau eru samt afskaplega listhneigð. Þau voru til dæmis dugleg að kaupa myndlist þrátt fyrir lítil efni. Það var líka ákveðin hefð á mínu heimili að kaupa þrjá ársmiða í leik- húsið og svo fengu systkinin að fara á sýningar til skiptis og ég fór mikið í leikhús. Sumt fannst mér skemmtilegt en margt leiðinlegt líka. En ég ætlaði aldrei að vera leikari,“ segir Ólafur Darri. Framhald á næstu opnu 18 viðtal Helgin 16.-18. ágúst 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.