Fréttatíminn


Fréttatíminn - 16.08.2013, Qupperneq 20

Fréttatíminn - 16.08.2013, Qupperneq 20
Krumma Úrval af skólavörum Gylfaflöt 7 Grafarvogi 587-8700 www.krumma.is Vatnslitir 960 kr Vaxlitir 440 kr Breiðir trélitir 1.264 kr Leir - 6 litir 300 kr Tússlitir - Fínir 380 kr Tússlitir - Breiðir 790 kr Fingramálning 670 kr Var lengi að ákveða Ólafur Darri gekk í Menntaskól- anum í Reykjavík en tók ekki þátt í leiklistarstörfum við skólann fyrr en á næstsíðasta árinu sínu. „Það var eiginlega tilviljun að ég var beðinn um að taka þátt í samlestri en það vantaði stráka. Ég gerði það og mér fannst það bara ótrúlega skemmtilegt, og stelpurnar voru líka frekar sætar,“ segir Ólafur Darri. Svo mætti Ólafur Darri í inn- tökupróf í Leiklistarskólann sem gekk mjög vel. „Það tók mig mjög langan tíma að taka þessa endanlegu ákvörðun um að þetta væri það sem ég ætlaði að leggja fyrir mig svona fyrst um sinn. Í hreinskilni sagt fyrir þá sem eru að hugsa um að leggja þetta fyrir sér, þá er leikarastarfið mjög erfitt. Þú ert alltaf með sjálfan þig í einhverri naflaskoðun og Leik- listarskólinn gerir mann eins sjálf- hverfan og maður getur orðið. Það er nú bara þannig að ef þú horfir í hyldýpið þá horfir hyldýpið í þig. Þeim mun meira sem þú skoðar sálartetrið í þér því fleira kemstu að um sjálfan þig og kannski líkar manni ekki allt sem maður sér. Og við erum öll óörugg með eitt- hvað. Finnst manni maður vera of neikvæður, sjálfumglaður nú eða of feitur eða mjór?“ segir Ólafur Darri. Náði ekki markmiði sínu Ólafur Darri útskrifaðist úr Leik- listarskólanum og hafði sett sér háleit markmið um framhaldið. „Þegar ég byrjaði í skólanum hafði ég sett mér það markmið fyrir sjálfan mig að 4 árum eftir útskrift ætlaði ég að vera komin á sama stað og Ingvar Sigurðsson,“ segir Ólafur Darri. „Það fór ekki alveg þannig. Ég var á föstum samningi í Borgar- leikhúsinu í 2 ár og var þá rekinn. Ég var því eins langt frá takmarki mínu og ég gat verið en það var líka frábært því að þarna var lífið að sparka í rassinn á mér til að ég kæmi mér úr sporunum,“ segir Ólafur Darri. „Ákveðin tímamót áttu sér því stað í kringum árið 2002. Ég hafði verið í sambúð sem lauk þá og ég þurfti að taka sjálfan mig mjög mikið í gegn andlega. Þegar ég lít til baka þá er það ein af mínum allra bestu ákvörðunum í lífinu,“ segir Ólafur Darri. „Ég hafði leikstýrt tveimur áhugasýningum sem voru ekki nógu góðar hjá mér. Ég hafði bara ekki það sem til þurfti á þeim tíma- punkti. Mér finnst leikarar og leik- konur oft vera með mikla pressu á sér að þurfa líka að vera að leik- stýra og skrifa eins og leikarastarf- ið sé ekki nóg. Það er eiginlega ekki fyrr en núna sem mér finnst ég vera kominn með reynsluna til að geta farið að hugsa um að leikstýra af einhverri alvöru. Það skal samt tekið fram að sumir geta auðveldlega leikstýrt beint úr leik- listarnámi, það átti bara ekki við mig,“ segir Ólafur Darri. „Ég veit ekki hvort að ég verð góður leik- stjóri, það var fyrir tveimur árum sem ég fékk þá hugmynd aftur að fara að leikstýra og ég ætla að gera það,“ segir hann. Réttar forsendur grundvallar- atriði Ólafur Darri hafði vissulega sett sér háleit markmið sem nýútskrif- aður leikari fyrir 15 árum síðan en hafði aldrei látið sig dreyma um að fá hlutverk í Hollywood. „Ég held að ég geti fullyrt það að ég hafi aldrei látið mig dreyma um það. Heimurinn hefur líka tekið miklum breytingum. Svo hef ég verið svo lánsamur að kynnast frá- bæru fólki og fengið að vinna með bestu leikstjórum okkar Íslend- inga. Svo hafði náttúrulega Vestur- port mikil áhrif á mig. Maður er einhvern veginn alltaf jafn undr- andi og þakklátur með það þegar leikstjórar taka séns á manni. Það er ekki öðruvísi í dag frekar en þegar Viðar Eggertsson réð mig í fyrsta hlutverkið mitt eftir út- skrift í Þjóðleikhúsið. Upplifunin var sú sama þá og þegar mér er boðið hlutverk núna. Hún breytist ekki. Og ég reyni að standa mig vel í þeim hlutverkum sem ég fæ og læt mig dreyma um það að ég hafi unnið mig upp,“ segir Ólafur Darri. „Maður takmarkar áhættu sína ef maður gerir hlutina á réttum for- sendum. Rétt forsenda fyrir mig er hvort að um sé að ræða sögu sem mig langar að segja og hvort að Ólafur Darri mun hlaupa til styrktar Sunnu Valdísar sem á í baráttu við AHC sjúkdóminn í Reykjavíkurmaraþoninu um næstu helgi. Ljósmyndir/Hari 20 viðtal Helgin 16.-18. ágúst 2013
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.