Fréttatíminn


Fréttatíminn - 16.08.2013, Blaðsíða 21

Fréttatíminn - 16.08.2013, Blaðsíða 21
RaftækjaúRval 15% afsláttur af raftækjum þegar þau eru keypt með innréttingu. Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • Opið: Mán. - föst. kl. 09-18 - Lokað á laugardögum í sumar ÞvottahúsBaðherbergi Fataskápar Allt í skúffurnar MIkið úrval af skápahurðum friform.is við hönnum og teiknum fyRiR þig Komdu með eða sendu okkur málin af eldhúsinu, baðinu, þvottahúsinu, anddyrinu eða svefnherberginu - og við hönnum, teiknum og gerum þér hagstætt tilboð í glæsilega danska innréttingu í hæsta gæðaflokki og vönduð raftæki á vægu verði. þitt eR valið Þú velur að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum, eða lætur okkur um samsetninguna. Að sjálfsögðu önnumst við líka uppsetningu og endanlegan frágang fyrir þá sem þess óska – fullkomin þjónusta, eigið verkstæði. 30 % afSlÁttuR út ÁgúSt elDavÉlaR - ofnaR - helluBoRð - viftuR & hÁfaR - uPPþvottavÉlaR - kæliSkÁPaR SÍðSumaRtilBoð 30% afSlÁttuR af öllum innRÉttingum út ÁgúSt fjölBReytt úRval af huRðum, fRamhliðum, klæðningum og einingum, gefa þÉR enDalauSa möguleika Á að Setja Saman þitt eigið Rými. Ólafur Darri mun hlaupa til styrktar Sunnu Valdísar sem á í baráttu við AHC sjúkdóminn í Reykjavíkurmaraþoninu um næstu helgi. Ljósmyndir/Hari út ákveðna tilfinningalega orku,“ segir Ólafur Darri. Það mikilvægasta í lífinu Ólafur Darri er búin að vera með konu sinni Lovísu Ósk Gunn- arsdóttur dansara í 10 ár og eiga þau saman þriggja ára dóttur. „Við kynntumst í Ostabúðinni á Skólavörðustígnum þar sem hún afgreiddi mig. Hún og dóttir okkar eru bestu manneskjur sem ég hef kynnst,“ segir Ólafur Darri og segir það mikilvægt fyrir sig að halda vinnunni og einkalífinu eins aðskildu og hægt er. „Það er í ákveðinni mótsögn við það sem ég var að segja,“ segir Ólafur Darri og hlær. „Ég er svo lánsamur að ég hlýt að hafa gert eitthvað gott í fyrra lífi. Ég er mjög mikill lífsnautna- maður og ég mætti stundum gera verr við mig í mat og drykk en á sama tíma er það mín skoðun að við erum hérna bara núna. Ég get ekki hugsað mér að þurfa að hlakka til þess að verða sjötugur til að fá mér nautasteik eða fara í golf. Það þarf að vera eitthvað jafnvægi á því að lifa ekki um efni fram en á sama tíma njóta þess að vera á lífi því að lífið er yndislegt,“ segir Ólafur Darri. Um næstu helgi mun Ólafur Darri hlaupa í Reykjavíkurmara- þoninu til styrktar Sunnu Valdísi sem á í baráttu við AHC sjúkdóm- inn. „Ég er svo lánsamur í lífinu og það er mikilvægt að hjálpa öðrum ef maður er í þeirri aðstöðu. Það er ekki sjálfsagt að hafa heilsu eða fá þau tækifæri sem ég hef fengið. Sunna Valdís og hennar yndislega fólk eiga skilið alla þá hjálp sem ég get veitt þeim og það er það sem ég er að vinna að,“ segir Ólafur Darri. Lovísa er dansari og listamaður sjálf og hefur því skiling á því hvað listamannastarfið getur falið í sér. „Sem listamaður, er það innprent- að í mann að verkefnið sem maður vinnur að sé það síðasta sem mað- ur fái og það er mjög sterkt í mér,“ segir Ólafur Darri. „Það hvetur mann kannski líka til að gera eins vel og maður getur.“ Hann segist líka þurfa að læra að segja nei við verkefnum, hann vilji hins vegar líka halda sér í vinnu- formi þó svo að stundum vilji hann gera eitthvað annað en að vinna. Þegar hann fær stór hlutverk vill hann undirbúa þau vel. „Sum verk eins og til dæmis Hamlet geta verið eins og að hlaupa maraþon. Það á við um að leika í Ófærð. Í vor liðu tveir mánuðir þar sem ég sá fjöl- skylduna mína ekki neitt. Hitti hana svo aðeins en svo ekkert aftur í mánuð og það er bara ekki nógu gott,“ segir Ólafur Darri. María Elísabet Pallé maria@frettatiminn.is ég geti lagt eitthvað að mörkum til þess að hún verði sögð. Það og … allir peningarnir,“ segir Ólafur Darri og hlær. Mikilvægt að kúpla sig út „Mín fyrirmynd er fólk sem mér finnst vinna vinnuna sína vel og það fólk er mjög fjölbreytt. Ég hef ekki tapað þeim eiginleika að geta farið í bíó eða leikhús og verið agndofa eftir sýninguna. Ég ætti í raun að vera búin að fatta galdur- inn og það er æðisleg tilfinning að geta farið og hugsað … hvernig er hægt að gera þetta svona vel?,“ segir Ólafur Darri. „Ég sá sýn- inguna Jerúsalem í London í fyrra og leið eins og ég hefði verið að sjá leikhús í fyrsta sinn.“ Ólafur Darri segir mikilvægt að kunna að fjarlægjast þau hlutverk sem hann leikur eða „að kúpla sig út“. Allir góðir leikarar þurfi að glíma við það að ná fjarlægð eftir krefjandi hlutverk. „Ég væri ekki góður leikari ef hlutverkin hefðu ekki áhrif á mig. Pétur Einarsson, einn af kennurum mínum í leiklist- inni kenndi okkur að menn þyrftu að finna leið til þess að kúpla sig út. Í dag finnst mér þetta yfirleitt ganga mjög vel en maður er misvel fyrirkallaður. Ef maður er að leika eitthvað sem er mjög sorglegt þá getur maður orðið mjög sorg- mæddur. Það er líka eitt sem er svo frábært við leikarastarfið að það fylgir því ákveðin hreinsun. Að fá að upplifa hræðilega sorg eða ofboðslega gleði, það losar viðtal 21 Helgin 16.-18. ágúst 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.