Fréttatíminn


Fréttatíminn - 16.08.2013, Síða 32

Fréttatíminn - 16.08.2013, Síða 32
32 ferðalög Helgin 16.-18. ágúst 2013  Borgarferðir Út Úr fjölmenninu Haustið í hliðargötunni Þótt styttist í sumarlok verður hitastigið stórborgum Evrópu og N-Ameríku áfram mælt í tveggja stafa tölum næstu vikur og jafnvel mánuði. Það er kannski ein af ástæðum þess að margir Íslending- ar bregða sér í borgarferð á haustin. Búðarölt er hluti af þess háttar ferðalagi og hér eru göturnar fyrir þá sem vilja fara aðeins út fyrir fjölmennustu verslunargöturnar í leit að hlýjum fötum. London Það getur verið ansi þreytandi að þramma eftir Oxfordstræti og öllum hinum stóru versl- unargötunum í bresku höfuð- borginni. Þeir sem vilja taka því rólega ættu að gera sér ferð í litla götu í Bloomsbury hverfinu sem nefnist Lambs Conduit Street. Í þessari hálfgerðu göngugötu er að finna fínar búðir þar sem líklegra er en ekki að eigandinn standi vaktina. Kaupmannahöfn Strikið þræða flestir sem til Kaupmannahafnar koma og Købmagergade sömuleiðis. En ekki gleyma að koma við í Pile stræde sem liggur sam- hliða þeirri síðarnefndu. Þar hefur jarðhæð ritstjórnarskrif- stofu Berlingske Tidende verið breytt í verslunarhúsnæði og í framhaldinu er gatan orðin einn vinsælasti viðkomustaður Kaup- mannahafnarbúa. Toronto Á miðparti Queenstrætis í Toronto er að finna útibú frá nokkrum af þekktustu verslun- arkeðjum heims. Þeir sem vilja heldur reyna að finna eitthvað sem er sér á báti ættu að halda eins langt í vestur og hægt er á Queenstræti en þar lifa fjöl- breyttar sérverslanir góðu lífi. Þaðan er svo tilvalið að kíkja í búðirnar á Ossington Avenue og enda göngutúrinn í Litlu-Ítalíu. Stokkhólmur Við Birger Jarl breiðgötuna í miðborg Stokkhólms bítast lúx- usmerkin um glæsilegu verslun- arhúsnæðin sem losna. Göngu- gatan Biblioteksgatan liggur samhliða þessum fínheitum en þar halda Cos og Urban Outfit- ters meðalverðinu niðri. Þar eru líka verslanir nokkurra af þekkt- ari tískuhönnuða Svía. Berlín Við Neue og Alte Schönhau- ser Strasse í Mitte hverfinu er urmull af verslunum sem fókusa á heimsþekkt vörumerki í bland við þýska framleiðslu. Þeir sem ætla að gefa sér tíma í búðaráp á þessum slóðum ættu einnig að kíkja við í Auguststrasse og Mu- lackstrasse því þar er að finna nokkrar forvitnilegar búðir. Washington DC Þeir sem eru í verslunarhugleiðingum í höfuðborg Bandaríkjanna eru vel í sveit settir í Georgetown háskólahverf- inu. Á tveimur helstu verslunargötum hverfisins, M st. NW og Wisconsin Avenue, hafa kaupmenn og veitinga- menn komið sér fyrir í lágreistum, gömlum byggingum og úti rölta stúd- entar, fjölskyldur og virðulegir eldri borgarar með ný föt í pokum merktum þekktustu tískuvöruframleiðendum Bandaríkjanna og Evrópu. Á miðri M Street er Georgetown Park verslunar- miðstöðin sem hefur upp á ýmislegt að bjóða þó hún teljist frekar lítil á amerískan mælikvarða. Glasgow Stórverslanir Glasgow borgar raða sér þétt við Buchanan og Argyle Street. Búðirnar verða aðeins smærri í sniðum við Ingram, Miller og Queen Street en því miður hækkar verðið líka töluvert á þeim slóðum. Kristján heldur úti ferðavefnum Túristi.is. Í Biblioteksgatan í Stokkhólmi trufla bílar ekki búðaröltið.Ljósmynd/ Nicho Södling Það er meira fjör að kíkja í búðirnar við M Street í Georgetown en að þramma um verslunarmiðstöðvarnar í úthverfum Washington borgar. Ljósmynd/GettyImages Það verða vafalítið margir Íslendingar á ferðinni um búðagötur Kaupmanna- hafnar á næstunni. Ljósmynd/Ty Stange Kristján Sigurjónsson kristjan@turisti.is

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.