Fréttatíminn - 16.11.2012, Side 36
leikhússins. „Í Macbeth er til dæmis búið að breyta
einhverjum hlutverkanna svo nú eru fleiri konur
í uppfærslunni en áður. Ég sé því ekkert til fyrir-
stöðu að skipta þannig út karlhlutverkum
fyrir kvenhlutverk, ef það hallar á konur í
sýningunni.“
Þórunn segir að henni hafi fundist
umræðan um kynjahallann í Dýrunum í
Hálsaskógi hafa átt mikinn rétt á sér. „Ég
get allavega ekki þrætt fyrir þá gagnrýni,
“ segir hún hlæjandi, „ég er bara lítil sæt
húsamús.“
Hún segir að mikil formfesta einkenni
oft leikhúsið og því vilji hún sjá breytt.
„Við erum óþarflega stíf með margt. Auð-
vitað er hægt að skipta út kynhlutverkum
einhverra dýranna. Ég vona að það verði
gert.“
Þórunn segir að vegna fárra hlutverka
hafi hún heyrt margar hryllingssögur af
leikkonum sem að ítrekað reyndu að koma
höggi á meðleikkonur sínar í keppni um
bitastæðasta hlutverkið. „Ég veit svosem
ekkert hvað er satt í þessu öllu saman.
Sjálf hef ég aldrei fundið fyrir neinu nema
velvild og vinskap. Ég var líka ótrúlega
heppin með bekk í skólanum. Þar var
alltaf lagt upp með að gera mótleikarann
sem bestan og þá orku hef ég tekið með
mér áfram. Ég held það sé einna mikil-
vægast fyrir sýningar í heild að þær séu
ekki keppni milli leikaranna. Við erum að vinna
saman því enginn nennir að horfa á nokkra leikara
á sviði runka sér og sínu egói í sínu horninu hver,
það er bara ekki gaman.“
Þórunn er nýverið farin að æfa nýtt verk, Karma
fyrir fugla. „Við erum bara búnar að æfa í viku
núna, og ef ég má segja það, þá er ég lang spennt-
ust fyrir því verki af því sem ég er að gera. Þetta
er mjög víðtækt verk um stöðu konunnar og hlut-
verkin sem við erum sett í mannfólkið.“ Þórunn
hellti sér í rannsóknarvinnu fyrir verkið. „Vinnan
fyrir hvert verk er eins og míníkúrs um einhvern
kima lífsins. Núna hef ég verið að kanna
heima vændis og kynbundins ofbeldis.
Það kom mér virkilega á óvart hversu
mikið af hræðilegum hlutum eiga sér
stað hér á landi. Hér eru jafnvel til feður
sem selja dætur sínar.“
Hún segir að með leikhúsinu langi
hana að breyta heiminum, með einum
áhorfanda í einu. „Að hafa áhrif á ein-
hvern og miðla upplýsingum, þó það sé
ekki nema einn einstaklingur sem þú
nærð til í salnum hvort sem þú lætur
hann brosa, hlæja eða vekur til umhugs-
unar um samfélagið sitt. Það er mér
ómetanlegt.“
Ætlar ekki að vera huglaus aftur
Hún segist einnig læra margt af leik-
húsinu sjálf. „Ég er alltaf að takast á við
eitthvað stórkostlegt. Eins og til dæmis
í Jónsmessunótt. Þar eru gömul hjón að
fara yfir farinn veg og konan var aldrei
hamingjusöm. Hún hafði aldrei kjarkinn
til þess að fara frá honum. Ég hugsa með
mér í hvert skipti sem ég fylgist með
þeim á sviðinu að ég ætli aldrei að enda
uppi sjötug og horfa til baka með eftirsjá.
Ég hef verið huglaus og ég ætla aldrei
aftur að vera það. Það mikilvægasta er að standa
með sjálfri sér og vera óhrædd. Það sem hefur háð
mér hvað mest í lífinu er að vera of kurteis. Maður
verður að skapa sér rými. Heimurinn stöðvast ekk-
ert þó þú gerir mistök,“ segir þessi kraftmikla leik-
kona.
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
Þegar ég
var komin á
þetta pró-
fessjonal stig
í náminu
langaði mig
eiginlega að
kasta upp af
leiðindum á
daginn.
„FYRIR STELPUR
Á ÖLLUM ALDRI!“
Ásdís Hjálmsdóttir, spjótkastari
„NAUÐSYNLEG
BÓK FYRIR
ALLAR STELPUR“
Ebba Guðný Guðmunds
dóttir,
rithöfundur og fyrirle
sari
„Ótrúlegar söguraf mögnuðum stelpum.Ég hvet allar stelpur semstráka til að lesa þessa bók.“Nína Dögg Filippusdóttir,
leikkona
DY
NA
M
O
RE
YK
JA
VÍ
K
Nú í vetur leikur Þórunn Arna í Dýrunum í Hálsaskógi, Jónsmessunótt, Macbeth og Karma fyrir fugla í Þjóðleikhúsinu.
Áætlunarflug Skipulagðar ævintýraferðirLeiguflug
alltaf ódýrara á netinu
Bókaðu
flugið á
ernir.is
Upplýsingar og bókanir
sími: 562 2640
netfang: ernir@ernir.is
vefur: www.ernir.is
Bíldudalur
Reykjavík
Gjögur
Vestmannaeyjar
Höfn
Húsavík
„Konur eru orðnar miklu
duglegri að skapa sér rými
innan leikhússins.“
36 viðtal Helgin 16.-18. nóvember 2012