Fréttatíminn - 16.11.2012, Page 62
62 heilsa Helgin 16.-18. nóvember 2012
Dáleiðsla UnDirmeðvitUnDin stýrikerfi líkamans
súkkulaðistrýtur
með sykurpúðum
og pekanhnetum
Áttu von á gestum í ka? Er afmæli
framundan? Á gottimatinn.is eru ölmargar
nýjar og ljúengar köku og bollaköku
uppskriftir. Komdu skemmtilega á óvart.
baksturinn byrjar
á gottimatinn.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
SóríaSiS
Fæst í heilsubúðum og apótekum
Græðikremið hefur virkað mjög
vel á sóríasis hjá mér en ég hef líka
tekið inn tinktúruna rauðsmára
og gulmöðru í 4 mánuði og er
mjög góður í húðinni.
Kristleifur Daðason
www.annarosa.is
Þá hjálpa ég
fólki að setja
teygju utan
um efri hluta
magans og
minnka hann.
É g lít á undirmeðvitundina sem ákveðið stýrikerfi, svona „windows“ líkam-
ans,“ segir Andri Sigurðsson dá-
leiðslutæknir. Hann segist geta
hjálpað fólki að breyta um lífsstíl
og grennast með því að dáleiða
það. „Það sem ég geri er að vinna
með undirmeðvitundina. Þar get
ég hjálpað fólki að breyta því sem
ekki er hægt að breyta venjulega.
Svona eins og mataræðinu, syk-
urlöngun og skammtastærðum.“
Hann segir að hægt sé að hjálpa
fólki að verða fyrr satt og einnig
sé hægt að vekja löngun í hreyf-
ingu. „Meðferðin er tvíþætt, það
sem ég get gert er annarsvegar
að slökkva löngunina í óhollustu
en hinsvegar get ég líka fram-
kallað svokallaða magaminnk-
unaraðgerð, huglægt. Þá hjálpa
ég fólki að setja teygju utan um
efri hluta magans og minnka
hann svo að viðkomandi finni
fyrr fyrir seddu. Ég get einnig
komið fyrir hvata hjá fólki til að
stunda hreyfingu sem það hefur
gaman af. Ég get ekki fengið þig
til að gera eitthvað sem þér finnst
leiðinlegt.“ Hann segir að oft
liggi aðrar ástæður að baki ofáti.
„Fólk er oft með kvíða eða eitt-
hvað þvíumlíkt sem það reynir
að lækna með mat og sætindum.
Ég get þá hjálpað fólki að komast
yfir þann vanda og leyst það í
staðinn.“
En hvað er dáleiðsla?
„Í undirmeðvitundinni dreymir
mann og þar býr til dæmis sjálfs-
traustið, hæfileikar, minningar
og vani. Þegar ég kem fólki í
dáleiðsluástand þá vinnum við
í undirmeðvitundinni. Til þess
notum við mikið ímyndunaraflið.
Ég notast við svokallaða þátta-
meðferð þar sem, ég leiði þig í
gegnum ákveðin skref. Þar sérð
þú um að breyta því sem þarf að
breyta, með leiðsögn minni. Það
er miklu betra og skilvirkara
heldur en ef ég breytti hlutunum
fyrir þig.“
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
Dáleiðsla hjálpar
fólki að grennast
Andri Sigurðsson er dáleiðslutæknir. Hann kveðst geta aðstoðað fólk við að losna við slæma
ávana, líkt og reykingar eða sækja glataðar minningar. Hann segist einnig geta hjálpað fólki að
grennast, með því að minnka huglægt í þeim magann og koma fyrir hvata að hreyfingu.
Andri Sigurðsson er dáleiðslutæknir. Hann segir að fólk geti grennst og tekið upp heilbrigðari lífsstíl með hjálp dáleiðslu.
Glæsileg gjöf* fyrir þig ef þú verslar vörur frá Estée Lauder fyrir 6.900
eða meira í LYFJABORG dagana 7. – 13. nóvember.