Fréttatíminn - 16.11.2012, Blaðsíða 80
Bókaflokkur Stephenie Meyer um
unglingsástir stúlkunnar Bellu og
vampírunnar Edwards hafa notið
mikilla vinsælda og sama er að segja
um kvikmyndirnar sem gerðar hafa
verið eftir þeim undir merkjum
Twilight, eða Ljósaskipta.
Síðustu bókinni í flokknum, Break-
ing Dawn, var að hætti Harry Potter
og Hollywood skipt niður í tvær
myndir og nú er loks komið að því að
leiðir skilji með þeim Bellu og Edward
og áhorfendum með frumsýningu
Twilight Breaking Dawn Part 2.
Parið Kristen Stewart og Robert
Pattinson eru sem fyrr í fremstu
víglínu í hlutverkum elskendanna en
þau hafa ekki síður staðið í ströngu í
einkalífinu en í þessum lokakafla þar
sem framhjáhald Stewart hefur tekið
af þeim báðum andlegan toll.
Í þessum lokakafla er Bella orðin
vampíra og hún og Edward búin að
eignast stúlkuna Renesmee. Fæðing
hennar leggst misvel í þá óvætti
sem byggja heim parsins þannig að
þau þurfa að smala saman öllum
sínum vinum og bandamönnum fyrir
lokabardagann fyrir lífi dóttur þeirra
og þeirra sjálfra.
80 bíó Helgin 16.-18. nóvember 2012
Vegur
leikarans
Joel
Kinnaman,
sem leikur
JW, hefur
vaxið mjög
frá því
Snabba
Cash var
frumsýnd.
Frumsýnd Fundið Fé
Sænska spennumyndin Snabba Cash gerði það gott árið 2010. Hún var gerð eftir samnefndri
og vinsælli glæpasögu sænska lögfræðingsins og rithöfundarins Jens Lapidus frá 2006. Ungur,
efnilegur en blankur hagfræðinemi, Johan Westlund, var í forgrunni sögunnar en til þess að geta
lifað jafn hátt og ríkir félagar hans gerðist hann umsvifamikill í fíkiniefnaheimi Stokkhólms. Fyrir-
hugað var að gera Snabba Cash að þríleik og nú er önnur myndin í flokknum komin til landsins.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
JW rótar sér
í meiri vandræði
6
sætið
.
Gegn átakastjórmálum
sameinum þjóðina
www.sigsig.is
Leiðréttum óréttlætið!
Flestum er ofboðið eftir nær fjögurra ára
vinstri stjórn.
1. Atvinnuleysi: 6.3%, 11.200 manns
2. Skuldastaða heimilanna:
Óásættanleg eignarýrnum
3. Fátækt: Fjölmargir líða skort
4. Verðtrygging lána:
Afnemum hana af neytendalánum
5. Atvinnulífið:
Forsendan er að koma atvinnulífinu í gang
Ég legg áherslu á að leysa úr þessum málum:
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins
24. nóvember 2012
SIGURÐUR
SIGURÐARSON
Ljósaskipti söguLok
Blóðsugur berjast fyrir lífi barns
Edward og Bella þurfa nú á öllum sínum
vinum að halda þar sem lífi dóttur þeirra
er ógnað.
Þótt JW sé inn við beinið ágætis náungi á hann erfitt með að halda sig á beinu brautinni og auðfengið fé heillar hann sem fyrr.
L ögmaðurinn Jens Lapidus hefur í störfum sínum sem slíkur haft kynni af sænskum glæpamönnum og í þann
reynslubanka sækir hann í sakamálasögur
sínar. Í Snabba Cash, eða Fundið fé eins og
hún kallast í íslenskri þýðingu, sökkti hann
sér ofan í undirheima Stokkhólms með þremur
ólíkum glæpamönnum sem allir standa í fíkni-
efnabasli.
Johan Westlund, eða JW, er ungur náms-
maður sem vill geta lifað hátt eins og félagar
hans og gerist því umsvifamikil í fíkniefnasölu
og sinnir helst þörfum yfirstéttarfólks. Jorge
er dópsali sem sleppur úr fangelsi á ævintýra-
legan hátt og ætlar að forða sér úr landi en þarf
fyrst að ná sér niðri á þeim sem komu honum
í fangelsi og Mrado er serbneskur mafíuhand-
rukkari sem misþyrmir og drepur án þess að
blikka auga en lætur sig dreyma um áhyggju-
laust líf með dóttur sinni.
Leiðir þessara manna liggja saman og hags-
munir þeirra flækjast sundur og saman þar til
allt endar með ósköpum og ferill JW í undir-
heimunum fær skjótan endi þegar hann lendir
í fangelsi.
Þegar áhorfendur hitta JW fyrir aftur í
Snabba Cash 2 hefur hann setið inni í þrjú
ár. Hann hefur hagað sér vel og sér fram á
reynslulausn með því skilyrði að hann haldi sig
réttu megin við lögin. Það reynist honum hins
vegar þrautin þyngri þar sem hann er vinafár
og skítblankur.
Hann veit til þess að einn af glæpafélögum
hans frá fyrri tíð situr á vænni fjárfúlgu og
freistingin til þess að reyna að komast yfir það
illa fengna fé og leggja þannig grunninn að
nýju og betra lífi ber hann ofurliði.
Snabba Cash naut talsverðra vinsælda á sín-
um tíma og er um þessar mundir að koma í bíó
í Bandaríkjunum þar sem sjálfur Martin Scor-
sese stendur fyrir kynningu hennar. Vegur
leikarans Joel Kinnaman, sem leikur JW, hefur
vaxið mjög frá því Snabba Cash var frumsýnd.
Hann hefur gert það gott í bandarísku útgáfu
sjónvarpþáttanna Forbrydelsen, The Killing.
Þá leikur hann RoboCop í nýrri endurgerð
hinnar blóðugu myndar Pauls Veerhoeven frá
árinu 1987.
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS MIÐASALA: 412 7711
KOMDU Í KLÚBBINN!
bioparadis.is/klubburinn
SKÓLANEMAR: 25% afsláttur
gegn framvísun skírteinis!
NÝTT Í BÍÓ PARADÍS!
11 NÝJAR VERÐLAUNAMYNDIR
LUX VERÐLAUN EVRÓPUÞINGSINS
ÁTAK GEGN KYNBUNDNU OFBELDI
ÞAGNARÞRÍLEIKUR THEO ANGELOPOULOS
MIÐAVERÐ: 500 KR.
Sjá sýningartíma á BIOPARADIS.IS og MIDI.IS
BIG TROUBLE
IN LITTLE
CHINA
DRAUMURINN
UM VEGINN
5. hluti
Að heiman
heim