Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.01.1915, Qupperneq 15

Læknablaðið - 01.01.1915, Qupperneq 15
LÆKNABLAÐIÐ 9 Ennfremur ber aS varast, aö byrja of fljótt á rafmagni, nuddi og böö- um, þegar sjúklingarnir fá lamanir; byrja fyrst á slíku 3—4 vikum eftir aö hitinn er horfinn og fara ofurhægt í fyrstu meö slíkt. Eg fer hér ekkert út í varúöarreglur um hefting veikinnar, enda er þeirra vist von frá landlækni, ef á þarf aö halda. /. HJ. S. Opið bréf til allra héraðslækna. Yfirleitt er nú komiö gott lag á farsóttaskýrslurnar mánaöarskýrsl- urnar, sem héraðlæknar senda landlækni, 3 í senn í lok hvers ársfjórð- ungs. < Sá galli er þó á þessari aöferö, aö um ársfjórðungamót er landlækni fákunnugt um heilsufar landsmanna undanfarna mánuöi — þangaö til skýrslurnar koma. Mér hefir oft dottið í hug, aö biðja lækna að senda mér skýrslu um hver mánaðamót, hikað mér við því, þeim fyrirhafnarauka fyrir þá og mig, en einkum óttast, að þá kæmi ruglingur á sendingarnar, hættara viö aö þær tíndust, miklu öröugra aö halda öllu í röð og reglu. Þess vegna hefi eg ekki tekið þetta ráö, en látið mér detta i hug, að biðja héraðslækna aö skrifa mér stutt bréf mánaðarlega og segja mér fréttir af heilsufari i héraðinu — svo að eg hafi jafnan glögt yfirlit yf- ir heilsufar á öllu landinu. En eg hefi verið í vafa um þaö, hvernig þetta myndi gefast, og líka ljóst, að læknum gæti ekki oröiö þessi fyrirhöfn neitt áhugamál eöa á- nægjuefni, nema þvi aö eins aö eg sæi mér fært að gera útdrátt úr öll- um þessum tilskrifum og koma þeim fréttum fljótt til allra lækna. Þaö hefi eg ekki séö mér fært hingað til. En nú gæti það tekist — i Læknablaöinu. Eg vil ekki gera þetta að embættismáli, að svo stöddu, að óreyndu. En eg er ekki í efa um þaö, að allir héraðslæknar verða mér samdóma, sjá, aö þetta gæti orðið til gagns og ánægju fyrir þá og mig. Þess vegna sting eg upp á að við gerum tilraunina — privatim, þann- ig, aö þeir hver um sig skrifi mér mánaðarlega (póstgöngur verða aö ráða) og segi mér i stuttu máli af heilsufarinu, það sem fréttnæmast er. Þá mun eg svo steypa upp úr þessum bréfum yfirlit yfir alt, saman —; og birta í Læknablaðinu. Og þá munum við fljótt sjá, hvernig gengur — hvernig þessi aðferð reynist. Læknablaöiö hefir góðfúslega lofaö aö taka þessar mánaðarfréttir. Rvík 26. jan. 1915. G. BJÖRNSSON landlæknir.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.