Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.1919, Blaðsíða 9

Læknablaðið - 01.04.1919, Blaðsíða 9
LÆKNABLAÐIÐ 55 um algerlega horfin. Þetta mun vera eina nýungin, sem þessar 50 sjúkrasögur hafa sannfært mig um, en því miöur er ekki alstaöar unt að sjá af sögunum, hvernig ástatt var. Þar sem þaö er tekið fram, hefi eg getið þess í töflunni. Ef málið er nánar athugað, er þetta ekki kynlegt: Lifandi, heilbrigð sullamóðir býr að eins til scolices (eða er ef til vill geld), en veikist hún, fyrir elli sakir eða af öðrum orsökum, breytast þessir scolices í sull- unga, sem búa til innan í sér nýja scolices. Veikist sullunginn, geta þessir annars stigs scolices orðið að annars stigs sullungum, og dæmi finnast til 3. stigs, en það er miklu síður hætt við því, af því að sullungarnir eru bersýnilega ótrúlega lifseigir. Oft og einatt sér maður þá synda í grefti og villigrefti og galllituðum vökva með vatnstæru litarlausu innihaldi. Mér vitanlega hefir enginn gert tilraunir til þess að sannfæra sig um, hvort scolices x ungum, sem svona er ástatt með, séu lifandi, og ætti það þó ekki að vera ógerningur, og skiftir nokkru rnáli að vita það, vegna út- sæðishættu. Að því óreyndu virðist mér alt mæla með því, að þeir séu lifandi, og ef svo er, þá er augljóst, að það er ómetanlegur ávinningur fyrir dýrið, að geta búið til sullunga úr þeim scolices, sem eru í lífsháska staddir vegna sýkingar sullmóðurinnar. Eins og kunnugt er, myndar lífs- ferill sulldýrsins — sullbandorms, blöðru etc. — nokkurs konar hlekkja- hring. Sumir hlekkirnir eru veikir, beinlínis bláþræðir, og slitni þeir, er afkvæmisvon þess einstaklings horfin. Á einhvern hátt, sem vér fáum ekki skilið, hefir dýrið öðlast þann mátt, að styrkja veikustu hlekkina. Afkvæmisvonin hvílir á scolices, en þeir eru luktir innan í sullamóður og hún inni i öðru dýri. Þarna er veikur hlekkur. Það er svo hætt við, að þess geti orðið langt að bíða, að scolices komist í hundsgarnir og meðan á biðinni stendur, er hætt við að sullamóðirin drepist. En í stað þess að scolices drepist með henni, verða þeir að sullungum, sem mynda nýja scolices. Það er stórkostleg styrking einna veikasta hlekksins, að þeir hlutar dýrsins, sem mest veltur á, geta yngt sig þannig upp. Úr því eg er farinn að minnast á veiku hlekkina í lífferli dýi'sins, get eg ekki stilt mig um að benda á annað atriði, enda þótt það sé nokkru fjarlægara. En það er þetta: Srnæð sullabandormsins, liðafæð og eggja, verður þess valdandi, að viðhaldshorfurnar væru miklu verri fyrir þennan bandorm en aðra stærri, með hundruðunx liða og hundruðum þúsunda eggja, ef ekki væri bætt úr á annan hátt. En það er einmitt bætt úr því með stærð sulls og s.colicesfjölda. Hvert egg úr þessari litlu tænia echino- coccus getur, ef lánið er léð, getið af sér þúsundum saman af scolices, en hvert egg t. d. úr tænia solium að eins einn. Á þann hátt jafnar alt sig. En hvernig getur egg úr litla orminum getið af sér risavaxinn sull, þegar eggið úr stóra orminum getur af sér að eins örsmáan? Það veit enginn, hvernig dýrið öðlast þennan mátt, en án hans er hætt við, að tegundin dæi út. Vitanlega væri oss mönnum enginn ami að því, en svo mikil er áleitni lífsins, ef eg má svo að orði komast, svo mikinn mátt hafa lifandi verur til aö laga sig eftir breytilegum lífsskilyrðunx og sveigja undan and- streymi lífsins, að það virðist ekki of djarft að gera sér í hugarlund, að margbreytni lifandi vera og viðhald hennar sé ekki tilgangslaus. Um leið og eg hverf frá þessum útúrdúr, vaknar spurningin: Hvaða

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.