Læknablaðið - 01.11.1919, Side 4
LÆKNABLAÐIÐ
162
hefir þetta atriöi vafalaust nokkra þýöingu fyrir útbreiöslu njálgsins sum-
staöar, t. d. þar sem vatnsból eru slæm og illa baldin, svo eggin geta bor-
ist í vatnið. —
Þetta, sem hér hefir verið tekið fram um lífsháttu njálgsins, hefir mikla
þýðingu fyrir t h e r a p í gegn oxyuriasis. Eins og kunnugt er, gengur
oft illa að lækna oxyuriasis fyllilega með lyfjum, og er það ekki undarlegt,
að ekki sé auðvelt á þann hátt að drepa alla oxyures, sem eru í þörmum
sjúklinga, þegar ekki er neitt specificum til gegn ormum þessum. En ef
„circulus“ sá i eðlisháttum njálgsins, sem hér hefir verið lýst, er rofinn,
þá er lækningin fremur auðveld, þ. e. a. s. ef konrið er í veg fyrir að eggin
(smitan) haldi áfram að berast inn í rnunn og maga sjúklinganna utan
a ð, þá hverfur þessi ormakvilli „af sjálfu sér“, ef svo mætti segja, því að
o r m a r n i r s j á 1 f' i r 1 i f a e k k i 1-engi í þörmunum; ef hið
stöðuga „import" af eggjum p e r o s hættir, þá hverfur kvillinn. Sumir
læknar halda því jafnvel fram, að það sé óþarfi að nota nein lyf við lækn •
ingu á oxyuriasis, jafnvel ekki skolun á rectum (og.colon), heldur sé alvsg
nóg, ef komið er í veg fyrir, að eggin geti haldið áfram að berast per os
inn í meltingarfærin, og vafalaust er þessi skoðun að mestu leyti rétt. Eg
hefi oft reynt að lækna oxyuriasis án þess að gefa nokkuð lyf inn, og
hafa ormarnir undantekningarlaust alveg horfið á furðu skömmum tíma
hjá þeim sjúklingum, sem fylgdu vel reglum þeim, sem gefnar voru. —
Skal hér þá tekið fram hið helsta, sem snertir lækningu á oxyuriasis,
bygt á því, sem að framan er greint um lífsháttu njálgsins.
Alt heimilisfólk, sem hefir kvillann, verður s a m t í m i s að reyna að
losna við hann, því annars geta þeir sem kvillann hafa, sýkt aftur þá sem
iosnuðu við hann. Meðan verið er að losna við njálginn, þarf að þvo börn-
um hendur í hvert skifti, áður en þau neyta matar, baða þau helst kvölds
og morgna, eða þá að minsta kosti þvo þeim kring um anus og genitalia
(femora), helst þvo þeim þannig eftir hverja defæcatio, klippa neglurnar
á fingrum þeirra (eggin safnast annars undir nöglunum þegar þau klóra
sér) og láta börnin sofa í nokkuð þröngum (lérefts-)buxum, svo þau ekki
geti fengið eggin á hendurnar á nóttunni; ennfremur þarf að þvo oftar
nærföt og rúmföt slíkra sjúklinga en annars mundi þurfa.
Vafalaust f 1 ý t i r þ a ð m i k i ð f y r i r lækningu, einkum á þeim, senr
miki nn njálg hafa, að nota líka clysmata, t. d. með y2% eða 1% upp-
ieysingu af sapo medicatus.
Það, sem hér er tekið fram um lækningu njálgs í börnum á líka við
fullorðna, mutatis mutandis. —
IIiá þeim sjúklingum, sem af einhverjum ástæðum ekki geta komið því
við að nota nógu mikið hreinlæti, t.il ])ess að lækna njálginn, getur það
orðið að góðum notum að gefa per os Tinct. absinthi 3svar á dag, og jafn-
framt nota Unguent. hydrargyri í reg-io analis, einkurn að kvöldi, áður
en gengiö er til sængur, um nokkurn tíma. —
Að lokum skal eg geta þess, að það er tekið fram í ,,litteratúr‘‘ um oxv-
uriasis, að kvilli þessi geti líka læknast mjög fljótt, ef sjúklingur neytir
matar, sem alveg er laus við kolvetni (og cellulose) — fæðis gegn sykur-
sýki. Þetta hefi eg þó aldrei reynt að nota. —
Þórshöfn, Færeyjum. S. Jónsson.