Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.09.1920, Blaðsíða 5

Læknablaðið - 01.09.1920, Blaðsíða 5
LÆKNABLAÐIÐ 13^ Sjúkl. er í meðallagi stór eftir aldri, hraustleg útlits og skýr á svip. Þegar hún liggur á bakið í rúminu, eins og henni er hægast, er algjör extension í coxa hægra megin,* en vinstra megin beygt það mikið, að vinstri hnésbót nemur við hægra lmé. Báðir neðri útlimir eru snúnir inn á við og aðdregnir í coxa, álíka mikið báðir og svo að innri rönd á vinstri patella ber í ytri rönd á þeirri hægri. Alveg rétt úr hægra hné, en vinstra hné svolítið beygt, svo að crura liggja parallelt. Alveg rétt úr um öklana á báðum fótum, aðdregið svo, að vinstri il liggur þvert yfir hægri rist. Stóru tærnar báðar dorsal-beygðar, en hinar tærnar allar ivið plantar-beygðar. í þessum skorðum eru útlimirnir altaf og erfitt að færa þá nokk- uð úr þeim. Það er breytilegra með efri út- limina hvernig þeir liggja, en gjarna heldur hún þeim svo, að 40 gr. abduction er í axlarliðn- um og rotation út á við. Ca. 40 gr. flexion í oln- bogaliðunum, lófar vita fram og hnefinn krept- ur. Oftast liggja báðir handleggir eins. Ef mað- ur réttir henni hendina og hún reynir að taka á móti, þá getur hún komið hendinni snöggvast ofurlítið í áttina, en síðan sperrist handlegg- urinn beint til hliðar með kippum og snúning- um og kemst svo loks i sinn upprunalega situs. Sé hún sett upp við eitthvað, þá getur hún stað- ið og stendur ])á eins og myndin ber með sér, i varo-equino stellingu, en komi einhver truflun l-n, eða geri hún tilraun til hreyfingar, þá dettur hún niður. Hún getur hálfsetið uppi við kodda. Athetosis er mikil, fingur og tær á sífeldu iði. Höfuðið hreyfir hún lítið, en getur þó með lagi sveigt það til, bæði fram og aftur og til hliðanna. Reflexar allir mjög mikið auknir, bæði partellarreflex, fótklonus og Babinski. Úr þessum venjulegu stellingum má færa limina dálitið, einkanlega handleggina, ef farið er mjög hægt og gætilega, en þó mótstaða töluverð og kreppast þeir jafn- harðan í sömu stellingar þegar slept er. Sé farið ógætilega að, komast limirnir allir á ið og eykst sperringurinn við það að miklum mun. Hún er mjög óskýr og þvögluleg í máli, þó virðist hún koma orðum að flestu og skilja vel. Hún hefir frá fæðingu verið algerlega ósjálfbjarga; þurft að mata hana og hirða sem ungbarn 9. des. 1915 réðst eg í a'ð operera hana og fór þá eftir leiðbeiningnm Försters í grein hans í Ergebn. der Orthopád. & Chirurg. 1911, og regl- ntn þéim, sem Kocher gefur um laminectomi í Chirurgische Operations- lehre 1907. Á operationsborðið voru lagðir 3 sivalir, þétttroðnir koddar, tveir undir og einn ofan á. Þegar búið var að svæfa hana (morphin-æther-narcose) þá var hún lögð á grúfu þar ofan á, þannig að hæst bar á regio sacro-lumbalis. Var þetta gert til þess, að liquor cerebro-spinalis rynni siður út. Eftir venjulega joddesinfectio, var * Athugist, að hægri á myndinni þýðir vinstri í lesmáli.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.