Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.10.1920, Page 6

Læknablaðið - 01.10.1920, Page 6
148 LÆICNABLAÐIÐ Enn um sectio caesarea abdominalio. Próf. Essen-Möller hefir í „Alm. svenska Lákaretidningen 1919 skrifaS ritg’erð „Om det klassiska Kejsarsnittets resultat och indicationer“. Þar eö skoöanir Essen-Möllers fara saman viö stefnu helstu fæöingarlækna nú á tímum, og þó í frjálslyndustu átt, og þar eö þessi ritgerð er sérstak- lega skipulega samin, eins og höfundarins var von og vísa, skal eg leyfa mér aö kynna íslenskum læknum efni hennar. Essen-Möller segir: Keisaraskuröur var til skamms tima talinn með hættulegustu aðgerö- um. Þetta var auövitaö fyrst og fremst af því, að skurðinum var venju- lega frestað fram úr öllu viti og sjúkl. þá venjulega meö hita eöa ban- vænn. Lengi spilti þaö ennfremur, aö legsáriö var ekki saumað; menn ætluöu sjálfu leginu aö lokast með vöðvasamdrætti. Nú er öldin önnur. Árangurinn af keisaraskurði er álíka góöur og af öörum holskurðum, nú er algengast, aö menn geri skurðinn eftir indicatio relativa, þar sem indicatio absoluta var oftast fylgt áöur. Mjög eru menn enn þá ósammála um, hversu gera skuli keisaraskurö, mönnum eru ekki settar eins fastar skorður og áöur. En því skyldu menn setja fastar skoröur fremur i yfirsetufræðinni en i kirurgiunni. Hve lengi má bíöa og vænta eftir eðlilegri fæöingu, og hvað skal þá taka til bragðs? Vending? Töng? Perforatio? Pubotomia? Eöa sectio cæsarea? Oft er ómögulegt að setja reglur; hver verður aö fara eftir sinu höföi. Essen-Möller hefir, síðan hann tók viö klinikinni i Lundi, fyrir rúm- um 20 árum síðan, gert 106 keisaraskurði og mist 6 konur. Tilefni skurö- anna voru þessi: Ecclampsia 10 Þrengsli í vagina • 3 Placenta prævia 7 Uterus arcuatus meö þverlegu . . 2 Myoma 8 Cancer pelvis . 1 Dystokia 74 Legrifa í aðsigfi en lifandi barn . . I Samtals 106 Dauöaorsakir voru þessar: Ecclampsia...................... 3 Ileus............................. x Embolia (art. pulrn.) .......... 1 Peritonitis....................... 1 Samtals 6 Af börnunum komu 9 andvana, en af þeim var að eins 1 lífvænlegt. Til skamms tíma hefir læknum komiö saman um, aö meta líf kvennanna meira en barnanna og hagaö sér þar eftir, en ]iaö er mikiö álitamál hvort læknirinn hafi rétt til nokkurrar viröingar á mannslífum. Ef spursmáliö er aö eins hvoru lífinu skuli heldur lilífa, ef annað er í veöi, vegma hins, þá er enginn okkar í vafa, og við samsinnum Napoleon, þegar liann í því vafamáli var spurður viövíkjandi konu sinni, og sagöi við læknirinn Dubois: „Ne pensez qu’a la mére!“ En slíkt vafamál heyrir til undan- tekninga nú á tímum. Spurningin er heldur þessi: Er yfir höfuð leyfi- legt aö fórna fóstrinu til aö draga úr lífshættu móðurinnar? Eöa er rétt aö bjarga fóstrinu ef áhætta móðurinnar vex að nokkrum mun?

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.