Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.01.1933, Síða 7

Læknablaðið - 01.01.1933, Síða 7
19. árg. Reykjavík, jan.—febr. 1933. 1.—2. tbl. Komplikationir og kontraindikationir við salvarsan. Eftir Hannes Guðmundsson. Vegna þess, aÖ á siÖastliÖnu ári hefir veriÖ meira um syfilis hér í Reykja- vík en dæmi hafa verið til áður, að minsta kosti um margra ára skeið, virðist vel til fallið, að fara nokkrum orðum um notkun þess lyfs, sem nú er langsamlega mest notað til að lækna þennan sjúkdóm með, salvar- sanið, og þá sérstaklega þœr hœttur, sem það getur liaft í f 'ór með sér, og hvað hægt sé að gera til að varast þær. Salvarsan er, eins og kunnugt er, mjög flókið arsensamband. Þess vegna svipar verkunum þess til hinna almennu arsen-verkana, og sömuleiðis eru eitranir þessara skyldu lyfja í stórum dráttum nokkuð likar. Aðalmunurinn á eiturverkunum arsens og salvarsans virðist liggja að miklu leyti í því, að lyfin eru gefin á tvennan ólikan hátt: annað per os eða subcutant, hitt nú orðið nálega eingöngu intravenöst, og ennfremur í því, að þegar rætt er um salvarsaneitranir, þá er einkum átt við hin sér- stöku áhrif lyfsins á syfilitiska foci viðsvegar í líkamanum. Aukaverkunum af salvarsani má skifta í 2 flokka: 1. ) þær, sem koma fram á meðan verið er að dæla lyfinu inn, eða rétt á eftir, og 2. ) þær, sem koma fyrst fram fleiri eða færri dögum siðar. Eg sleppi hér að geta nánar um þau staðbundnu áhrif, sem salvarsan hefir í för með sér, sé því viljandi eða óviljandi dælt undir húð eða inn í hold, en þar veldur það, svo sem kunnugt er, heiftugum, afarsárum infiltrötum, sem geta orðið að abscessum eða stórum nekrosum. — Algengustu einkenni, sem komið geta um það leyti, sem lyfinu er dælt inn, eru uppköst, þau koma stundum fyrir á meðan verið er að dæla lyf- inu inn, en oftast rétt á eftir. Þessi uppköst má venjulega koma i veg fyrir, með þvi að láta sjúklinginn ekki neyta neinnar fæðu í 4 klst. áð- ur en hann fær sprautuna, og er þeirri reglu fylgt í flestum sjúkrahúsum. — Alloft koma fram hin svokölluðu vasomotorisku einkenni: mikil hlóð- sókn að höfðinu, sjúklingurinn verður cyanotiskur í framan, getur feng- ið ödematösa andlitsbólgu, sem þó venjulega hverfur fljótt aftur. Stund- um fylgir þessu svimi, dyspnoe, tachykardi og verkur í lijartastað. Ef þessara einkenna gætir á meðan dælingin stendur yfir, verða menn að stöðva hana í bili, án þess þó að draga nálina út, og þegar sjúkling- urinn hefir jafnað sig, dælir maður síðan mjög hægt inn því, sem eftir er. Ef læknirinn hefir séð sjúklinginn fá þessi angioneurotisku einkenni, þá

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.