Læknablaðið - 01.01.1933, Blaðsíða 20
14
LÆKNABLAÐIÐ
hálfu, en hinsvegar átti nú mikilsmegandi maÖur hlut að máli, þar sem
Medicinaldirektörinn var.
Siðan hafa nokkur hréf farið á milli um þetta mál, en um áramótin bár-
ust oss þau gleðitiðindi í bréfi frá Medicinaldirektör Frandsen, að nú væri
það klappað og klárt. Eftir ýmsa samninga við hlutaðeigendur í Danmörku,
hafa fengist 5 „surnumerær" kandidatapláss á ágætum sjúkrahúsum. Kandi-
datarnir fá ókeypis fæði og húsnæði, en engin laun. Þeir taka þátt í öllum
störfum sem reglulegir kandidatar. Gert er ráð fyrir því, að 3 kandidatar
komist að 1. mars og 2 kandidatar 1. sept. Starfa þeir hálft ár á lyflækna-
deild og hálft á handlæknadeild. Samningar um þetta gilda fyrst um sinn
til þriggja ára.
Þó að þetta sé mikill fengur fyrir íslenska kandidata, þá væri það auð-
vitað æskilegt, að þeir gætu fengið nokkurn fjármunalegan styrk aukreitis.
Vonandi leggur Sáttmálasjóður hér nokkuð af mörkum í þessu augnamiði
af fé því, sem veitt er til utanfarar kandidata. Auk þess hefir Læknafélag
Islands sótt um nokkurn styrk frá danska sáttmálasjóðnum. Gangi nú alt
þetta í ljúfa löð, þá er kandidötum vorum tiltölulega vel borgið.
Það hefir kostað töluverða fyrirhöfn í Danmörku, að koma þessu öllu í
kring, og seint myndi það hafa gengið, ef Medicinaldirektör Frandsen hefði
ekki rétt oss hjálparhönd. Fimm manna nefnd annast alt, sem gera þarf
framvegis í þessu máli í Danmörku, og eiga þessir sæti í henni:
Medicinaldirektör dr. med. Johs. Frandsen.
C. D. Bartels, Overkirurg ved Viborg Amts- og Bysygehus.
Áge Finsen, Kontorchef i Indenrigsministeriet.
Dr. med. Skúli Guðjónsson, Fabriklæge.
Dr. med. E. Meulengracht, Overlæge ved Bispebjerg Hospital, Afdel. B.
Þá hefir og verið skipuð 5 manna nefnd, til þess að velja úr umsækjend-
um og annast alt hér. I henni eru:
Próf. Guðmundur Hannesson.
Próf. Guðmundur Thoroddsen.
Próf. Jón Hj. Sigurðsson.
Próf. Níels Dungal.
Docent Matthías Einarsson.
Þrjú kandidatapláss eru þegar veitt (Gerður Bjarnhéðinsson, Pétur Jak-
obsson og Jón Steffensen).
I haust fást væntanlega 3 pláss, eitt 1. nóv. og tvö 1. okt. Umsóknir
sendisí Lœknafcl. ísl. fyrir 1. sept.
G. H.
Ný lagafrumvörp
Ritstjórn Læknablaðsins hefir beðið mig um að geta að nokkru frum-
varpa þeirra, er nú liggja fyrir Alþingi og snerta heilbrigðismál.
Fjögur frumvarpanna eru stjórnarfrumvörp, flutt að tilstuðlan land-
læknis, en hin flytur hann sjálfur. Frumvörpin eru hér tekin í þeirri röð,
er þau komu fram í þinginu.