Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.01.1933, Page 29

Læknablaðið - 01.01.1933, Page 29
LÆKNABLAÐIÐ 23 ritgerð ICaisers hefir frainkallað töluverðar umræður um málið, með ádeil- um á ritgerð hans, og hefir hann í svari sínu játað, að árangurinn af ton- sillectomi til að koma í veg fyrir rheumatiska infektion, hafi orðið sér vonbrigði. Wilkinson og Ogilvie hafa (Lancet 1928) gert tilraun til að fylgjast með börnum til að komast að, hver væri hinn endanlegi árangur af ton- sillectomi hjá börnum, sem tekin höfðu verið í spítala með febris rheuma- tica acuta. Þeir komust að þeirri niðurstöðu, að minna sé um hjartabilanir hjá þeim börnum, sem eitlarnir eru teknir úr. Niðurstöður þeirra eru samt bygðar á lágum tölum, og hefir m. a. ritstjórn Lancet’s dregið gildi þeirra nokkuð í efa. (Að mestu eftir J. F. C. Haslam: Recent Advances in pre- ventive Medecine. London. Churchill 1930). N. D. Krystalliserað virus. I Journ. of Am. ined. Ass. 20. ág. er frá þeim undrum sagt, að fundist hafi krystalliserað ultravirus, sem veldur smitandi sjúkdómi á tóbaksjurtum (Mosaic disease of tobacco). Stærð virus þessa hafði áður verið ákveðin og var áþekk hæmoglobin molekúls. Svipaða stærð halda rnenn og að bac- teriofag og ýms ferment hafi. Það er dr. Wilson og aðrir starfsmenn við Plant Research Inst., New York, sem hefir tekist að þrauthreinsa þetta virus og krystallisera það. Eftir þessu ætti það að vera einskonar ferment. Það ætti þá liklega að vera hugsanlegt að mislingar, bólusótt og fleiri ultravirussjúkd. stafi af slíkum kynjafermentum. Læknar mega vera við flestu búnir á þessum dögum. G. H. Chinin gegn inflúensu. Próf. Spitta í Berlín birtir grein í D. m. W. 20./1. '33, þar sem hann skýrir frá því, að hann hafi, vegna óvenjulegs næmleika fyrir inflúensu, tekið upp á þvi fyrir 15 árum siðan, að taka daglega inn chinin, aðeins 50 mg. á dag, reglulega á hverjum morgni og tvöfaldað skamtinn, þegar skæðir inflúensufaraldrar hafi gengið. Síðan kveðst hann aldrei hafa fengið in- flúensu, hvorki 1918 né inflúensuveturinn 1928—'29. Segist hann hafa sömu reynslu frá heimilisfólki sinu og öðrum, sem farið hafi eftir ráði sínu. Einfalt ráð og ódýrt að prófa það, og nægt tækifæri nú, þegar inflú- ensan er á leiðinni yfir landið. Próf. Múhlens í Hamborg lætur mjög vel af að gefa chinin therapeutiskt gegn inflúensu. Notar Solvochin, Transpulmin eða Chinin-Urethan og dælir inn í vöðva 0,5 g. af chinin x einhverju af þessum meðulum. Segist hafa séð bráðan bata hjá þeim 10 sjúklingum, sem hann hafi reynt þetta á. N. D. Fleming Möller & Skúli V. Guðjónsson: Fluorosis osseum et ligamentorum. (U. f. L. 5./1. ’33). Höfundarnir hafa rannsakað 78 starfsmenn í kryolít-verksmiðju, senx hefir haldist illa á fólki, vegna ójxæginda og óhollustu, sem starfinu hefir fylgt. Helmingurinn hafði silicosis, fæst þó á háu stigi. Við röntgenskoð- un fxmdust ennfremur einkennilega þéttir skugga á beinum og liðböndum, aðallega í hryggjarliðum og grind. Sjúkl. fengu bráðan magasjúkd., sem lýsti sér með velgju, lystarleysi og uppköstum. Kryólít er, eins og það kem-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.