Kraftur - 01.05.2003, Síða 6

Kraftur - 01.05.2003, Síða 6
6 7 Starfsemi göngudeildarinnar hófst í janúar 2002. Hún fór hægt af stað, en hefur eflst mjög mikið allt síðasta ár og koma nú nýjar beiðnir svo til daglega. Greinilegt er að mikil þörf er fyrir sérhæfða krabbameinsendurhæfingu og fögnum við því að hafa fengið tækifæri til að láta á það reyna. Það er Landspítali Háskólasjúkrahús sem stendur að göngudeildinni. Við göngudeildina starfa sjúkra– þjálfarar, iðjuþjálfar og aðstoðarfólk. Annað fagfólk frá LSH er kallað til eftir þörfum og má þar nefna sálfræðing, hjúkrunarfræðing, næringarráðgjafa og prest. Göngudeildin hefur yfir að ráða leikfimissal, litlum tækjasal, sundlaug, eldhúsi, verkstæðisherbergi og nokkrum einstaklingsherbergjum. Leitast er við að hafa andrúmsloftið mjög heimilislegt þannig að fólk fái á tilfinninguna að það sé komið út af stofnun og á minni einingu. Við upphaf endurhæfingarinnar fær hver einstaklingur viðtal við iðju- og sjúkraþjálfara. Einstaklingurinn gerir sjálfur grein fyrir þeim vandamálum sem eru aðkallandi og hann vill vinna með. Lífsgæðamatið „Heilsutengd lífsgæði” er lagt fyrir alla einstaklinga þegar þeir byrja í endurhæfingu og aftur þegar þeir útskrifast. Þetta er gert til að meta líðan einstaklinganna áður en endurhæfing hefst og í lokin til að sjá hvort endurhæfingin getur bætt það sem kalla má heilsutengd lífsgæði. Þau getur enginn metið betur en einstaklingurinn sjálfur. Þeir einstaklingar sem koma á göngudeildina eiga það margir sameiginlegt að þurfa stuðning líkamlega, andlega og félagslega. Það er einnig áberandi að margir þessir einstaklingar eru haldnir streitu og kvíða, og hafa þörf fyrir að læra að þekkja þessi einkenni og ná að hvílast og læra slökunaraðferðir. Margir eiga það sameiginlegt að hafa einangrast eftir erfiða lyfjameðferð, hafa t.d. þurft að fara tímabundið eða alfarið af vinnumarkaði. Orkan er af skornum skammti og erfitt að halda uppi fyrri hlutverkum og takast á við daglega iðju. Á göngudeildinni er mikið lagt upp úr samvinnu og að einstaklingarnir styðji hvorn annan. Þetta hefur tekist vel og hafa myndast góð tengsl og hópefli. Ýmis líkamleg vandamál geta komið upp í kjölfar greiningar og meðferðar vegna krabbameins og því álagi sem fylgja veikindunum. Vandamál eins og þrekleysi, kraftminnkun, sogæðabólgur, verkir, vöðvaspenna og hreyfiskerðing eru algeng. Einstaklingsbundið mat fer því fram og eftir það er viðkomandi vísað í einstaklingsmeðferð, hópþjálfun eða hvorutveggja. Vandamálin geta líka verið af andlegum toga og getur meðferðin þá beinst að þeim sérstaklega. Sálfræðingur er kallaður til ef einstaklingurinn óskar eftir því. Boðið er uppá eins fjölbreytta starfsemi og hægt er þannig að allir finni eitthvað við sitt hæfi og er endurhæfingin í stöðugri þróun. Þeir hópar sem eru í boði vikulega eru: Gönguhópar, 1x létt ganga, 1 x kraftganga, leikfimishópar, vatnsleikfimi, hópar í tækjasal, slökunarhópar, listasmiðjuhópar og eldhúshópar þar sem farið er í gegnum mataræði, auk sjálfstyrkingarnámskeiða þar sem fólki gefst kostur á að ræða allar þær tilfinningar sem koma upp í kjölfar sjúkdómsins. Auk hópavinnu er boðið uppá einstaklingsmeðferðir eftir því hvert vandamálið er. Djúpslökun hefur verið mikið notuð. Þar er markmiðið að einstaklingurinn finni fyrir kyrrð og ró og geti losað um streitu. Á þessum tæpur tveimur árum sem göngudeildin hefur verið starfrækt hefur hún eflst og dafnað. Við finnum fyrir mikilli jákvæðni frá okkar skjólstæðingum og þeim finnst skipta máli að vera innan um einstaklinga sem hafa gengið í gegnum svipaða reynslu. Endurhæfingin getur líka verið markvissari fyrir þau vandamál sem til staðar eru. Sérhæfð endurhæfing fyrir krabbameinssjúka er brautryðjenda- starf og erum við ennþá að þróa og feta inn á nýjar brautir. Við höfum lagt okkur fram við að byggja upp metnaðarfulla starfsemi og sinna brýnni þörf sem hvergi annars staðar er sinnt á þverfaglegan hátt. Sú vinna sem nú hefur verið unnin er þegar farin að hafa áhrif á einstaklingana, í bættri líðan og aukinni orku til að takast á við lífið á nýjan leik. Það er von okkar og trú að deildin fái að eflast enn frekar og vonandi verða fleiri fagstéttir með fast aðsetur á göngudeildinni í framtíðinni. fia› er gott a› vera í Kópavogi Deild endurhæfingarsviðs LSH er staðsett í Kópavogi

x

Kraftur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kraftur
https://timarit.is/publication/982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.