Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1947, Blaðsíða 8

Læknablaðið - 15.10.1947, Blaðsíða 8
82 L Æ K N A B L A Ð I Ð miklu sótt, skrifaði eg lijá mér, þegar er hún var um garð geng- in, í febr. 1907. Hinn 7. nóv. 1906 varð veik- innar fyrst vart, upp á Lauga- vegi. Þ. 20. sama mánaðar voru 20 manns orðnir veikir, niður um Skuggahverfið. Vatnsbólin liér í bænum voru fá og strjál. Fyrir ofan læk (Lækjargötu) var ekki um önn- ur að gera en Bakarapóstinn við Bernböftsbakarí, Skálholts- lindina, norðan undir Barna- skólanum, neðan við Laufás- veginn, Barónspóstinn ofan við Laugaveginn, rétt austan við þar sem nú er Laugavegur nr. 92, og svo Móakotslindin, ncðsl við Vatnsstíginn. Var sæmilega frá þessum vatnsbólum gengið. Steinlímd hleðsla, timburþak yfi r og vatnsdæla í (póstur). Oll voru þessi vatnsból, nema Móakotslindin, þannig sett, að þau voru allfjarri húsum, svo ekki vju mikil Iretta á nð skolp eða annar óþverri rvnni að þeim. Hvað Móakotslindina snertir. þá voru peningsbús og sálerni rétt austan við hana, of- ar i liallanum og veitti ég því athygli, þegar ég atbugaði vatnsbólin, eftir að taugaveik- in tók að magnast, að sprung- ur voru miklar í brunnhleðsl- unni. Vakti ég nú máls á því við héraðslækni, Steingrim Mattbí- asson og landlækni, Guðmund Björnsson, að þarna gæti \er- ið upþspretta sóttarinnar, en þeir töldu það ólíklegt, þetta væri venjuleg haust-taugaveiki, öllu niagnaðri þó en venjulega gerðist. Rétt var það, að undanfarin ár hafði oft borið meir á tauga- veiki að haustinu, um það bil, sem búið var að taka upp úr görðuin (garðáburðurinn var venjulega tekinn úr salerna- for). Stundum barst Iiún lika með aðkomufólki, sem kom úr kaupavinnu, einkanlega bar á þvi, ineðan taugaveikin var landlæg i Biskupstungum, en það var að vísu nokkru seinna en þetla, að taugaveikinnar i Tungunum, eða öllu heldur frá Skálholti, varð mest vart (sbr. grein eftir mig í Læknabl. 1916, nr. 10). En nú var kominn ótti í bæj- arbúa, er taugaveikissjúkling- unum fjölgaði stöðugt, og skrif- aði þá Steingrímurgrein í „Lög- réttu“, þ. 25. nóv., og er aðal- inniháldið tekið saman í lok greinarinnar og hljóðar þann- ig: „Jarðvegurinn í Reykjavík er hér og hvar óhreinkaður af taugaveikisbakterium, vegna þess, bve salerni eru ófullnægj- andi og hve illa er séð fyrir útrýmingu saurinda. Bakteríur geta með ýmsu móti borizt inn í húsin og valdið veikinni. Þær berast með vatninu og aftur á sama liátt með ýmsum óhrein- indum frá j arðveginun; kring- um húsin.“

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.