Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1947, Blaðsíða 12

Læknablaðið - 15.10.1947, Blaðsíða 12
86 LÆKNABLAÐIÐ Frá Rannsóknastofu Háskólans við Barónsstíg. Forstöðumaður: Próf. N. Dungal. UM SLATURBOLU. ^flir j-^órarin uemsson. I. Nú munu vera um 28 ár síö- an próf. Guðmundur Magnús- son ritaði fyrstur manna um sjúkleika þann, er liann nefndi granuloma, en sem meðal al- mennings hefir hlotið nafnið sláturbóla (Borgarfjörður) eða slátursjúkdómur (Hornafjörð- ur), hornasótt o. fl. Fvrir þann tima hafa starfandi læknar á Islandi ekki getið um kvilla þennan, ef dæma má af skýrsl- um þeim, sem prentaðar liafa verið. Hinsvegar virðist sem augu lækna hafi opnast fyrir kvillanum eftir að G. M. gerði grein fyrir honum og upp frá því fóru þeir smámsaman að geta hans í ársskýrslunum. Ekki er þó ólíklegt að læknar hafi almennt þurft að fást við kvilla þennan áður. en annað tveggja hafa þeir ekki þekkt liann, eða ekki þótt hann um- talsverður. G. M. liefir þó fundizt ómaks- ins vert að lýsa kvilla þessum og þar með vakið aðra til íhug- unar á honum og virðist sem margir síðari tima læknar hafi viljað feta i fóispor Iians, því að margir hverjir eru að leita orsaka sjúkleikans og geta sér til um tildrög til smitunar. Ef dæma mætti eftir árs- skýrslum læknanna almennt, virðist flest liníga að því, að um smitun frá sauðfénaði sé að ræða og þá sérstaklega frá kindahornum. í því sambandi er rétt að hugleiða, að venju- lega er getið um, að sá sýkti Iiafi orðið fyrir einhverju Imjaski eða meiðsli og sýking- in sprottið upp frá því. Af skýrslunum verður þó ekki hægt að gera sér ljóst, hve þró- unartími kvillans er langur, því að svo óljóst er greint frá um smitunartíma eða live langur timi leið frá því er menn urðu fyrir hnjaski eða hand- fjötluðu fénað til þess, er kvill- ans varð fyrst vart. Mér þykir hlýða að greina hér litillega frá orsökum þeim, sem nefndar eru í ársskýrslum og taldar valdar að smitunum. Nokkrir geta um að kvillinn stafi af fjárbiti. (Hhsk. 1926 og 1933). Ennfremur er talið að ei hafi þurft annað en að lirufla sig á fjárhúskeng (Hbsk. 1938) og 1940). Einn héraðslæknir

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.