Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1947, Blaðsíða 16

Læknablaðið - 15.10.1947, Blaðsíða 16
90 LÆKNABLAÐIí) var ekki unnt að athuga lil hlít- ar, þar sem viðbúnaður var ekki nægilegur með egg, þegar sjúkling bar að. Fósturdauði í eggjunum varð strax á þriðja degi eftir inndælinguna og við athugun á eggliimnunum sást, að um margskonar sýklasýk- ingu var að ræða og verður ekki sagt, hvort það stafaði af ógætni við sáningu, eða frá vessanum sjálfum. Þjrkir mér það síðara sennilegra, því að sá, sem sáði i eggin, liafði nokkra æfingu við það. Eins og sjá má af heilbrigð- isskýrslunum, virðast sumir læknar, og jafnvel flestir, ælla, að menn þurfi að skeinasl af kindahornum til þess að sýkj- ast af þessum kvilla. Af þessu þótti vert að athuga, hvort nokkuð fyndist í sló honianna, er eitthvað væri á að græða, þvi að lítils er að vænla við að at- liuga sjálft hornið, sem er eins og' allir þekkja mjög hrufótt og fullt af óhreinindum og því til- valin gróðrarstía fvrir jarð- vegsbakteriur. Þann 13. okt. 1939 voru tek- in 150 kindarhorn, frá Slátur- félagi Suðurlands, af nýslátr- uðu fé. Strax og hornin voru flutt i Rannsóknastofuna voru þau tekin og lögð í 2% karból- vatn, þannig, að aðeins bláend- inn á slónni var upp úr og þess þannig gætl að karbólvatnið kæmist ekki inn í hornið. Hornin voru látin liggja þann- ig í einn sólarhring, því næst voru þau tekin og söguð þvert yfir miðju með dauðhreinsaðri sög. Sáð var síðan frá hverri sló á margskonar æti, bæði við venjulegan loflþrýsting og í þynntu lofti. Ekki þótti ráðlegt að hafa hitann í gróðurskápn- um meiri en 26°C., þar sem gera má ráð fyrir að hornahit- inn sé nokkru lægri en líkams- liiti kindarinnar. Bakteriugróður var mikill frá hverri sló í öllum gróður- skálum við hæði loftskilyrðin. Við smásjárathugun sást, að um mjög margvíslegan gróð- ur var að ræða alls staðar, en mest bar þó á klasasýklum (staphylococci). Þessi rannsókn var síðar endurtekin, þ. 17. okt. ’39, þannig að ekki var sagað yfir hornið, heldur var slónni náð út með lagni, án þess að snert- ing yrði á þeim hluta slóarinn- ar sem sáð var frá. Vöxtur var svipaður og fyr greinir, og sér- greining sýklategundanna þótti ekki tiltækileg. Um svipað leyti og þetta fór fram, bar að sjúkling, sem hafði greinilegt granuloma i greipinni við þumalfingur liægri handar. Maðurinn (E. S.) hafði um 10 daga skeið, að því er hann mundi bezt, fund- ið til kláðafiðrings og síðan fór að bera á vessandi blöðru og leiddi það til þess að hann leitaði læknis. Hinn sýkti vefur

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.