Læknablaðið - 01.06.1948, Blaðsíða 19
LÆKNABLAÐIÐ
27
haft þar mikil áhrií' til aukn-
ingar, og eigi það ef til vill
eftir að koma enn betur í ljós
seinna. Ég held að full ástæða
væri til að fyrirskipa skrásetn-
ingu allra vanfærra kvenna,
til þess að hægt væri að gera
á þeim W.R.-próf í tíma.
2. Nærri helmingi fleiri börn
dóu af völdum fæðingar og
átta sinnum fleiri konur, í
Reykjavík en í öðrum kaupstöð-
um. Til þessa liggja auðvitað
margar orsakir, og eru þessar
helztar:
a. Fyrst og fremst skortur
á eftirliti fyrir fæðingu.
Þetta staðfestist ef litið er
á heilbrigðisskýrslur frá
1944, bls, 112, þar stend-
ur: 802 vanfærar konur
komu í fyrsta sinn á
Heilsuverndarstöðina, en
alls voru framkvæmdar
2362 skoðanir. Þar segir og,
að Ijósmóðirin hafi farið i
718 vitjanir, ekkert segir
um, hvort þetta séu sömu
konurnar, sem komu á
• stöðina eða ekki, en líklegt
er að svo sé, að ljósmæð-
urnar háfi stefnt þeim á
stöðina. Hinsvegar komu
1348 konur niður á þessu
ári í Reykjavík, og liafa
því 546 konur alls ekki
komið á stöðina. Þetta
þarf engan að undra, þar
sem aðeins er um eina
heilsuverndarstöð að ræða
í miðbænum, konur eiga
illa heimangengt, jafnvel
þótt styttra væri að fara,
og áhuginn nægur fyrir
hendi til að nota starf-
semina, og svo eru hinar
konurnar, sem lítinn áliuga
hafa, eða eru jafnvel feimn-
ar við að sjma sig; um
þær veit enginn, nema
skrásetning væri fyrirskip-
uð, en þar er ef til vill að
finna þær konurnar, sem
mesta þörfina hafa fyrir
eftirlit.
b. Skortur á ljósmæðrum er
augljós, þar sem í Reykja-
vík koma 85 fæðingar á
hverja ljósmóður, en að-
eins 31 í öðrum kaupst.
60 fæðingar ættu að nægja
hverri ljósmóður, ef öllum
ætti að gera góð skil.
c. Skortur á fæðingarsérfræð-
ingum. Hér er um alvar-
legt mál að ræða, sem
þarfnast fljótrar lausnar.
öllum læknum má vera
það Ijóst, að mjög óeðli-
legar fæðingar eru erfið-
ustu tilfelli, sem læknar yf-
irleitt fást við, og þarfnast
frekar öllu öðru stund-
un þaulæfðra og mennt-
aðra sérfræðinga, en
eru alls ekki meðfæri al-
mennra lækna. Því minna
eftirlit, því tíðari erfiðu til-
fellin.
d. Skortur á sjúkrarúmum
er og augljós. Yfirlitið ber